Óafturkræft heilsutjón af misnotkun kristjana guðbrandsdóttir og linda blöndal skrifar 13. mars 2015 09:45 Brynhildur Ýr Ottósdóttir fékk tilboð í lyf sín sem hún tekur dagsdaglega við vanvirkni í skjaldkirtli. Henni finnst misnotkun lyfsins grafalvarleg. Stöð 2
Fólk sem glímir við vanvirkni í skjaldkirtli er beðið um að selja lyf sín. Lyfin eru misnotuð af fullfrísku fólki í grenningarskyni með alvarlegum afleiðingum eins og Karl Andersen, prófessor í hjartalækningum, greindi frá í gær. Tvö tilvik urðu á Landspítalanum nýverið þar sem misnotkun lyfsins olli alvarlegri hjartabilun og hjartastoppi. Brynhildur Ýr Ottósdóttir þarf að taka inn skjaldkirtilshormón vegna vanvirkni í skjaldkirtli á hverjum degi. Hún greindi frá því í fréttum Stöðvar 2 í gær að hún hefði verið beðin um að selja lyf sín og að einkaþjálfari hennar hefði ráðlagt henni að taka þrefaldan skammt af lyfinu til að ná betri árangri í líkamsrækt. Hún hafnaði ráðum einkaþjálfarans. „Mér finnst þetta grafalvarlegt mál, því að fólk sem greinist með þennan sjúkdóm er í mjög reglulegum blóðprufum og eftirliti til þess að fá ekki þessa skjaldkirtilseitrun, segir Brynhildur Ýr Ottósdóttir, um þau tilfelli sem hefur orðið vart á Landspítalanum þar sem fullfrískt fólk tekur inn skjaldkirtilshormón til að léttast. Brynhildur Ýr þarf að taka inn skjaldkirtilshormón vegna vanvirkni í skjaldkirtli á hverjum degi og óskar engum þess að glíma við slík veikindi. Hún hefur einu sinni lent í því að skjaldkirtillinn fór í ofvirkni. „Það var með því verra sem ég hef upplifað, það er eins og hjartað í manni sé að fara út úr líkamanum, þú liggur í sófanum og þér líður eins og þú sért á hlaupabrettinu,“ sagði Brynhildur og sagði að hún hefði verið lengi að jafna sig.„Það þarf að stöðva þetta“ segir Karl Andersen, prófessor í hjartalækningum, sem vill sérstakt átak vegna misnotkunar á lyfjum ætluðum til að meðhöndla vanvirkni í skjaldkirtli. Fimm prósent þjóðarinnar nota skjaldkirtilslyf.Fréttablaðið/PjeturFólk sem misnotar lyfin getur þróað með sér röskun sem gengur ekki til baka. Þegar fullfrískt fólk tekur lyf sem ætlað er að örva starfsemi kirtilsins getur fólk fengið alvarleg einkenni ofvirks skjaldkirtils. Hyperthyroidism eða thyrotoxicosis er það ástand þegar skjaldkirtillinn seytir óhóflega miklu magni af hormónum út í blóðið. Skjaldkirtilshormónið, sem er misnotað, er T3-hormón sem er ekki algengt að notað sé til meðhöndlunar á vanvirkum skjaldkirtli nema með sérstakri undanþágu frá Lyfjastofnun. Fyrir utan þau skjaldkirtilshormón sem hafa markaðsleyfi á Íslandi hafa verið flutt inn lyf undir heitunum Armour thyroid og Tiroide ibsa á undanþágu. Bæði þessi lyf eru lyfseðilsskyld og hafa verið afgreidd gegn undanþágulyfseðlum útgefnum af læknum. Við ávísun lyfja gegn undanþágulyfseðli ber læknirinn aukaábyrgð á notkun lyfsins.Sjá einnig:Skjaldkirtilshormón seld á svörtum markaði á Íslandi Lyfjastofnun hefur ekki vitneskju um innflutning annarra skjaldkirtilshormóna en þessara og minnir á að ef lyfseðilsskyld lyf eru keypt í vefverslunum og send til landsins með pósti er það tollyfirvalda að stoppa þau. Fyrstu níu mánuði ársins 2014 hafa 15.324 einstaklingar fengið ávísað skjaldkirtilshormónum, eða tæplega 5% þjóðarinnar þrátt fyrir að algengi vanstarfsemi skjaldkirtils (skjaldvakabrests) hjá fullorðnum sé minni eða um 2%.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Sjá meira