Lífið

Alltaf verið dugleg í græna litnum

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Solla segir óþarfa að ætla sér of mikið í einu.
Solla segir óþarfa að ætla sér of mikið í einu. Mynd/EyglóGísladóttir
„Yfir hátíðarnar þá er maður svona aðeins búin að breyta hjá sér rútínu og matmálstímum, magninu af því sem maður er að borða og venjum og þá hefur mörgum reynst svo vel að taka kannski svona einn eða tvo daga þar sem þeir eru á léttu fæði,“ segir hráfæðiskokkurinn Sólveig Eiríksdóttir betur þekkt sem Solla.

„Það er svo ótrúlega gott að gera eitthvað til þess að hreinsa. Þó maður sé ekki að fara í einhverja svona tuttugu daga föstu,“ segir hún.

Yfir hátíðarnar borða margir meira en þeir gera dagsdaglega og meira er um nasl og sætindi. Eftir áramót er mikill hugur í mörgum að taka matarræðið föstum tökum eftir reykta kjötið, saltið og sætindin.

Solla segir óþarfa að ætla sér of mikið í einu. „Frekar að venja sig af sykrinum á nokkrum dögum, þótt þú sért að borða svolítið hnetu- eða möndlusmjör og þá ferðu á þriggja daga salat- eða djúsdaga eftir það. Þarft ekki að gera þetta allt í einu.“

Solla býr einnig yfir nokkrum góðum ráðum fyrir þá sem eru að berjast við að kveða niður sykurpúkann og bendir fyrst á grænan djús sem hægt er að útbúa úr ýmiskonar grænu grænmeti. „Græni liturinn hjálpar til við það að minnka sykurlöngunina. Bara liturinn, blaðgrænan hjálpar manni og ósjálfrátt ýtir sykurlönguninni til hliðar, þess vegna hef ég alltaf verið svona dugleg í græna litnum,“ segir hún glöð í bragði.

Einnig segir hún að sniðugt sé að blanda vatn með te-i eða ávöxtum sem gefa gott bragð. „Vatn með sítrónu og engifer til dæmis, og eiga það bara á flösku.“

Fyrir þá sem finnst gott að narta í eitthvað þá er stökkt grænmeti góður kostur. „Þá myndi ég vera með sellerí og gulrætur líka. Dýfa þeim í hnetu- eða möndlusmjör. Getur bara dýft því beint í krukkuna, þú borðar þetta hvort sem er á nokkrum dögum,“ segir Solla og hlær.

Sem hressandi snakk eru frosin vínber sniðug og slá á sykurlöngunina. „Berin eru betri kostur en ávextirnir af því þau eru ekki eins sæt og hjálpa þér að koma eðlilegri rútínu á aftur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.