Ætla að leita réttar síns gagnvart Ísrael 2. janúar 2015 21:22 Ríad Mansúr, sendiherra Palestínu hjá Sameinuðu þjóðunum, segir aðild verða að veruleika innan tveggja mánaða. Vísir/AP
Ríad Mansúr, sendiherra Palestínu hjá Sameinuðu þjóðunum, lagði í gær inn umsókn um aðild Palestínu að Alþjóðlega sakadómstólnum í Haag. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur haldið neyðarfund í ríkisstjórn sinni vegna umsóknarinnar. Palestínumenn hyggjast leita til dómstólsins til að sækja Ísrael til saka fyrir stríðsglæpi. Með aðild að dómstólnum geta Palestínumenn farið þess á leit að ísraelskir herforingjar og stjórnmálaleiðtogar verði dregnir fyrir dóm vegna aðildar sinnar að stríðsglæpum í tengslum við landtökubyggðir Ísraela á hernumdu svæðunum eða hernaðaraðgerðir sem valdið hafa dauða almennra borgara í stórum stíl. Ísraelar hafa hótað einhvers konar hefndaraðgerðum verði það úr að Palestína fái aðild að dómstólnum. Bandarísk stjórnvöld hafa sömuleiðis verið mjög andsnúin því að Palestína fái aðild. Mahmúd Abbas Palestínuforseti undirritaði hins vegar aðildarumsókn strax á miðvikudag, daginn eftir að Bandaríkin komu með neitunarvaldi sínu í veg fyrir að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna krefðist þess að Ísraelar skiluðu innan þriggja ára öllum herteknum svæðum aftur til Palestínumanna. „Þetta er mjög mikilvægt skref,“ sagði Mansúr sendiherra eftir að hafa skilað inn umsókninni. Hann sagði að aðild yrði að veruleika innan tveggja mánaða.
Mest lesið Íslensk stúlka í útskriftarveislu sem breyttist í martröð Innlent Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Innlent Margrét Hauksdóttir er látin Innlent Tíu milljónum fátækari eftir augnablik af einbeitingarleysi Innlent Nauðlending á þjóðveginum Innlent Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum Innlent Líkir aðalfundi Sósíalista við Warhammer-útsöluna í Nexus Innlent Eldur kviknaði í hjólhýsi við íbúðarhús Innlent Náðar spilltan fógeta Erlent Segir Guðmund Hrafn ekki sjá bjálkann í eigin auga Innlent Fleiri fréttir „Hann er að leika sér að eldinum!“ Sakaður um morðtilraun og akstur undir áhrifum fíkniefna Náðar spilltan fógeta Telja vanrækslu hafa valdið mannskæðu þyrluslysi í Finnlandi Fjögur börn í hópi þeirra mest slösuðu „Bara sjokk hvað maður var nálægt þessu“ Einn í haldi eftir að ekið var á fólk í Liverpool Deila enn um „stóra fallega“ frumvarpið Hnekkti dómi fyrrverandi kanslara fyrir meinsæri Hjónaerjur í opinberri heimsókn Macrons Mestu árásirnar hingað til, aftur Kim reiður yfir misheppnaðri sjósetningu Útskrifuð af geðdeild daginn fyrir stunguárásina í Hamborg Konur og karlar fái sortuæxli á ólíkum stöðum Mannfall þegar skólabygging var sprengd Segir Pútín „genginn af göflunum“ og íhugar refsiaðgerðir Frestar fimmtíu prósenta tollum á Evrópusambandið Ætla að hernema stærstan hluta Gasa og smala íbúum á afmörkuð „öryggissvæði“ Fundu lík fimm skíðamanna nærri Zermatt Umfangsmestu loftárásir frá upphafi stríðs Níu af tíu börnum tveggja lækna létust í árásum Ísraela Árásarkonan Þjóðverji á fertugsaldri Tólf særðir eftir hnífstunguárás í Hamborg Vilja breyta mannréttindasáttmála til að auðvelda sér að sparka innflytjendum úr landi Hvetja Íslendinga í Harvard til að hafa samband Ákærður fyrir að myrða sendiráðsstarfsfólk Ísraels Netanjahú segir Starmer, Macron og Carney draga taum Hamas Rússar notuðu Brasilíu sem njósnaraverksmiðju Íslendingur í Bandaríkjunum: „Þetta er mjög óþægileg staða“ Banna erlendum nemendum að sækja Harvard Sjá meira