Hettuklæddir menn skutu að lögreglumönnum Samúel Karl Ólason skrifar 9. febrúar 2015 11:27 Sérsveitir lögreglunnar umkringja nú stórt svæði í Marseille. Vísir/AFP
Hettuklæddir menn eru sagðir hafa skotið að lögreglumönnum með Kalashnikov árásarrifflum í borginni Marseille í Frakklandi. Lögreglumenn hafa nú lokað stórum hluta borgarinnar og hafa sérsveitir verið sendar á vettvang. Svæðið sem um ræðir heitir Castellane en glæpatíðni þar er sögð vera mjög há. Um sjö þúsund íbúum borgarinnar hefur verið skipað að halda sér heima fyrir. Komið hefur til áfloga á milli foreldra sem vilja sækja börn sín á nærliggjandi leikskóla og lögreglumanna. Öryggisstig í Frakklandi hefur verið gífurlega hátt frá því að árás var gerð á skrifstofu Charlie Hebdo í París. Engin meiðsli hafa verið tilkynnt. Enginn lögreglumaður varð fyrir skotum, þegar skotið var á bíl þeirra. Eins og sjá má á þessu myndbandi er viðbúnaður lögreglu mikill.Tirs de Kalachnikov : forte tension cité de la... by LaProvenceLe Figaro segir frá því að tveir hópar manna, fimm til tíu manns í hvorum hóp, hafi verið að berjast sín á milli um eiturlyf. Á vef Sky News segir að mennirnir hafi skotið að lögreglubíl sem kom á vettvang vegna tilkynningar um átök þeirra. AP fréttaveitan hefur eftir embættismanni í Marseille að byssumennirnir hafi skotið að lögreglumönnum og hafi einnig skotið út í loftið af handhófi. Samkvæmt Independent mun forsætisráðherra Frakklands, Manuel Valls, heimsækja borgina seinna í dag. Þar ætlaði hann að kynna áætlun stjórnvalda um að draga úr glæpum í borginni og að auka lífsgæði. Morðtíðni þykir há í borginni þar sem í flestum tilfellum er um að ræða átök glæpagengja. Lögreglan telur hugsanlegt að árásarmennirnir séu farnir af svæðinu, en ætla að leita þeirra. The latest pictures from Marseille, where it's reported hooded gunmen opened fire on police http://t.co/QkXIO2lN9M http://t.co/RGqjtFXJcC— Sky News (@SkyNews) February 9, 2015
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Erlent Fleiri fréttir D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Sjá meira