Áfram deilt um einkavæðingu: Áslaug spyr hvort borgarstjóri sé búinn að gefast upp Bjarki Ármannsson skrifar 27. september 2015 11:29 Borgarstjóri er ósammála þeim Áslaugu og Ásdísi Höllu, sem tala fyrir auknum einkarekstri í heilbrigðismálum. Vísir
Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, ítrekar í nýrri skoðanagrein sinni á Vísi þá skoðun sína að leita þurfi nýrra leiða til að ná betri árangri og meiri hagkvæmni í velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar. Hún spyr hvort Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, sem gagnrýndi ummæli Áslaugar um aukna einkavæðingu í þjónustunni fyrir helgi, sé búinn að „gefast upp“ frekar en að taka nýrri hugmyndafræði vel. Áslaug ræddi hugmyndir sínar um einkavæðingu í kerfinu í Föstudagsviðtali Fréttablaðsins en í kjölfar birtingu þess hélt Dagur því fram að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík vildi „grundvallarbreytingu á samfélagsgerðinni þar sem efni ráði því hverjir fái fyrsta flokks heilbrigðis- og velferðarþjónustu.“ Áslaug segir það af og frá að hugmyndir flokksins gangi út á að spara með því að takmarka velferðarþjónustuna.Áslaug segir af og frá að hún vilji draga úr þjónustu til borgarbúa.Vísir/Stefán„Við viljum þvert á móti finna lausnir til að fá meira fjármagn til velferðarmála almennt, og auka skilvirkni án þess að fólk greiði meira fyrir grunnþjónustuna en það gerir í dag,“ skrifar Áslaug. „Enginn er að tala um að draga úr þjónustu. Hins vegar er hægt að auðvelda fólki að sækja sér viðbótarþjónustu. Þannig má draga úr álagi á núverandi velferðarkerfi og stytta bið.“Sjá einnig: Eigum við ekki að gera betur? Hún bendir á að góð reynsla sé af sjálfstæðum rekstri grunnþjónustu annars staðar á Norðurlöndunum og að það sé ein ástæða þess að norræna velferðarkerfið sé það skilvirkasta í heimi. „Reynsla nágrannalandanna sýnir að einkaaðilar sýna alls ekki síðri þjónustulund en opinberir enda eiga þeir allt undir því að reksturinn fái hljómgrunn hjá notendum,“ skrifar hún. „Sveigjanleiki og skilvirkni er meiri í einkarekstri en opinberum. Staðreyndin er einnig sú að nýsköpun og þróun gengur mun hraðar fyrir sig hjá einkaaðilum.“Ásdís Halla Bragadóttir er talsmaður meira valfrelsis í heilbrigðisþjónustu á Íslandi.Vísir/PjeturSegir orð og athafnir Dags ekki haldast í hendur Í Facebook-færslu Dags um málið síðastliðinn föstudag líkti hann hugmyndum Áslaugar við sýn Ásdísar Höllu Bragadóttur, sem vakið hefur mikla athygli fyrir að mæla fyrir aukinni samkeppni í heilbrigðisþjónustunni á Íslandi. Ásdís segir á Facebook-síðu sinni að hún sé sammála borgarstjóra um það að örlög fólks megi aldrei ráðast af efnum þess. Hún segir athafnir hans þó ekki haldast í hendur við orð hans í þessum efnum. „Ef borgarstjórinn er þeirrar skoðunar að örlög megi aldrei ráðst af efnum hvers vegna hlustar hann þá ekki á hugmyndir Áslaugar sem geta falið í sér betri velferðarþjónustu þar sem grunnþjónustan er greidd af borginni en íbúarnir sjálfir, líka hinir efnaminni, fá að velja hvaðan hún kemur?“ skrifar Ásdís Halla.Ég er svo innilega sammála yfirlýsingu Dags B. Eggertssonar borgarstjóra hér á Facebook í dag um að efni eigi ekki að rá...Posted by Ásdís Halla Bragadóttir on 25. september 2015
Tengdar fréttir Föstudagsviðtalið: Dagur er búinn að koma sér út í horn Það er óábyrgt að fara á svig við lögin. Þó að málstaðurinn sé góður. Að gera það þegar fólki hentar af því það telur sig vera með góðan málstað, það ryður bara brautina fyrir því að þegar aðrir komast til valda þá geri þeir slíkt hið sama,“ segir Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Í vikunni hefur fátt annað verið rætt en sniðganga borgarstjórnar við ísraelskar vörur sem var svo dregin til baka. Boðað var til borgarstjórnarfundar á miðvikudag þar sem Áslaug nefndi nasista í samhengi við aðgerðirnar. Hún baðst síðar afsökunar á framsetningu máls síns. 25. september 2015 07:00 Eigum við ekki að gera betur? 27. september 2015 10:51 Gagnrýnir hugmyndir Áslaugar: Dagur segir efni ekki eiga að ráða örlögum fólks Borgarstjóri gagnrýnir ummæli Áslaugar Friðriksdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, á Vísi í dag, þar sem hún segir að einkavæða þurfi í velferðarkerfinu. 25. september 2015 11:41 Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fleiri fréttir Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Sjá meira
Föstudagsviðtalið: Dagur er búinn að koma sér út í horn Það er óábyrgt að fara á svig við lögin. Þó að málstaðurinn sé góður. Að gera það þegar fólki hentar af því það telur sig vera með góðan málstað, það ryður bara brautina fyrir því að þegar aðrir komast til valda þá geri þeir slíkt hið sama,“ segir Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Í vikunni hefur fátt annað verið rætt en sniðganga borgarstjórnar við ísraelskar vörur sem var svo dregin til baka. Boðað var til borgarstjórnarfundar á miðvikudag þar sem Áslaug nefndi nasista í samhengi við aðgerðirnar. Hún baðst síðar afsökunar á framsetningu máls síns. 25. september 2015 07:00
Gagnrýnir hugmyndir Áslaugar: Dagur segir efni ekki eiga að ráða örlögum fólks Borgarstjóri gagnrýnir ummæli Áslaugar Friðriksdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, á Vísi í dag, þar sem hún segir að einkavæða þurfi í velferðarkerfinu. 25. september 2015 11:41