Sverja nýjum leiðtoga talíbana hollustueið Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 14. ágúst 2015 07:00 Leiðtogi al-Kaída sór leiðtoga talíbana hollustueið í gær. nordicphotos/afp „
Sem leiðtogi al-Kaída sver ég þér [Akhtar Mansour] hollustu líkt og Osama bin Laden og píslarvottarnir bræður okkar sóru Mohammed Omar hollustu á sínum tíma,“ sagði Ayman al-Zawahiri, leiðtogi hryðjuverkasamtakanna al-Kaída, í yfirlýsingu í gær. Al-Zawahiri sór nýjum leiðtoga talíbana, Akhtar Mansour, þannig hollustueið. Mansour tók við undir lok síðasta mánaðar eftir að tilkynnt hafði verið um andlát Mohammeds Omar, fyrrverandi leiðtoga talíbana. Omar er talinn hafa látist árið 2013. Skiptar skoðanir eru þó meðal talíbana um eftirmanninn og tók þó nokkurn tíma að taka ákvörðun um að hann skyldi setjast í stól leiðtogans. Al-Zawahiri sagði enn fremur að furstadæmi talíbana í Afganistan væri fyrsta og eina alvöru furstadæmi múslima frá falli Ottómanaveldisins. Þá sagði leiðtoginn samtök sín standa gegn hverju því ríki múslima sem ekki færi eftir sjaríalögum. „Ég heiti því að heyja áfram heilagt stríð þar til öll lönd múslima hafa verið frelsuð,“ sagði leiðtoginn, sem nú er talinn vera í felum á landamærum Afganistans og Pakistans. Talíbanar sendu út yfirlýsingu í gær þar sem þeir sögðust ekki vilja tjá sig um hollustueið al-Zawahiris að svo stöddu. Hins vegar stóð í yfirlýsingunni að talíbanar hygðust gera það á næstu dögum.
Mest lesið Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Innlent Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott Innlent Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Innlent Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Innlent Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Erlent Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Erlent Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Innlent Fleiri fréttir Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi „Ketamín-drottningin“ játar að hafa selt Perry ketamín Hamasliðar ganga að tillögum um 60 daga vopnahlé Góður fundur en fátt fast í hendi Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro Sjá meira