Lögreglumaður dró geðsjúka konu um gólf dómshúss – Myndband Samúel Karl Ólason skrifar 25. febrúar 2015 10:38 Lögreglumaðurinn hefur verið settur í leyfi á meðan að atvikið er rannsakað.
Lögreglumaður í Flórída í Bandaríkjunum dró konu eftir göngum dómshúss, einungis nokkrum mínútum eftir að læknar sögðu hana eiga við geðræn vandræði að stríða. Konan sem heitir Dasyl Rios hefur í nokkur skipti verið færð á stofnun gegn vilja sínum. Móðir hennar var með henni í dómsal, segir að dóttir sín sé með tvíhverfa geðhvarfasýki. Hún fór ekki með dóttur sinni úr salnum þar sem hún var að taka saman dótið þeirra. Þá heyrði hún mikinn dynk og áttaði sig á því að eitthvað hefði gerst. Hún hljóp út og sá lögreglumann draga dóttur sína eftir gólfinu. Vitni segja New York Daily News að Rios hafi setið á bekk og grátið þegar lögreglumaðurinn dró hana af bekknum. Aðrir lögreglumenn fylgdust með eða hjálpuðu Johnson, en enginn þeirra reyndi að reisa hana við eða stöðva Johnson. Johnson skrifaði í skýrslu sína um atvikið að hann hefði óttast að Rios myndi valda fjaðrafoki á göngum dómshússins. Því vildi hann koma henni fljótt í burtu og dró hana á fótunum í gegnum fjölmennan gang. Lögmaður sem var í dómshúsinu tók atvikið upp á myndband. Á myndbandinu má sjá Rios gráta og kalla á móður sína. Hún sagði lögreglumanninum að það eina sem hún hafi viljað hafi verið að sitja í friði og gráta í nokkrar mínútur. Rios var flutt frá dómshúsinu á geðsjúkrahús en fjölskylda hennar mun fara yfir stöðu sína, þegar fullvisst er um að hún hafi náð sér. Lögreglumaðurinn hefur verið settur í leyfi á meðan að atvikið er rannsakað.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Fleiri fréttir Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán