Fleiri dularfullir gígar finnast í Síberíu Atli Ísleifsson skrifar 25. febrúar 2015 13:27 Þessi gígur fannst í Síberíu á síðasta ári. Mynd/Siberian Times
Rússneskir vísindamenn hafa fundið fjóra gíga til viðbótar við þá þrjá dularfullu gíga sem fundust í Síberíu á síðasta ári. „Þetta verður að rannsaka betur þegar í stað, svo að við getum komið í veg fyrir stórslys í framtíðinni,“ segir Vasili Bogojavlensky, yfirmaður rannsóknarteymis sem hefur leitað skýringa á málinu. Í júlí á síðasta ári vöktu myndir af þremur gígum á Jamalskaga í norðurvesturhluta Síberíu gríðarlega athygli, en þá var sagt að þeir hafi myndast á síðustu tveimur árum. Hreindýrahirðar á svæðinu segja gígana hafa myndast eftir „sprengingar sem hafi fleytt mold og ryki í loft upp“. Allt frá því að greint var frá tilvist gíganna hefur sérstakt rannsóknarteymi undir stjórn Bogojavlensky rannsakað svæðið í leit að fleiri sambærilegum gígum. „Nú erum við búin að finna sjö slíka gíga. Fimm þeirra eru á Jamalskaga, einn í sjálfstjórnarhéraðinu Jamal og einn á Krasnoyarsvæðinu,“ segir Bogojavlensky í samtali við Siberian Times. Hann telur mögulegt að tugir slíkra gíga eigi enn eftir að finnast. Vísindamenn segja mögulegt að sprengingarnar megi rekja til metangass sem hafi losnað í kjölfar hlýnandi loftslags.Post by The Siberian Times.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Fleiri fréttir Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán