Hlýindaskeið enn í hafinu við Ísland Kristján Már Unnarsson skrifar 14. júní 2015 11:45
Áhyggjur um að kuldaskeið sé gengið í garð í hafinu við Ísland eru ótímabærar. Hafrannsóknastofnun telur eftir nýjasta vorleiðangur að ennþá ríki hlýsjávarástand á fiskimiðunum. Þetta kom fram í viðtali við Jóhann Sigurjónsson, forstjóra Hafrannsóknastofnunar, í fréttum Stöðvar 2. Segja má að bæði slæmar og góðar fréttir hafi verið kynntar af hitastigi sjávar á fréttamannafundi Hafrannsóknastofnunar í liðinni viku. Vondu fréttirnar eru stór kuldapollur sem mælist suður og suðvestur af landinu þar sem yfirborðshiti í maí mældist einni til tveimur gráðum undir meðaltali síðustu þrjátíu ára. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að úti fyrir öllu Norðurlandi mældist hiti um hálfri gráðu yfir meðaltali og út af norðaustur- og Austurlandi mældist hitinn einni til tveimur gráðum yfir meðaltalinu.Hafrannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson.Vísir/Pjetur.Jóhann Sigurjónsson segir að kuldinn í hafinu suðvestur af landinu sé visst áhyggjuefni en engu að síður telji stofnunin að enn sé hlýsjávarástand í hafinu við Ísland, eins og verið hafi síðustu tuttugu ár, og eins og varði á tímabilinu 1920 til 1964. Síðan hefði komið kuldaskeið og hafísár með mjög köldu árferði. „Við teljum ennþá að við séum í þessu hlýsjávarástandi,“ segir Jóhann en tekur þó fram að það gæti breyst fyrr eða síðar og sagan segi að það muni kólna. Þótt kuldapollur sé suðsuðvestur af landinu gildir annað um hafið norðan og austan af landinu. Þar er hlýrra, samkvæmt mælingum í vorleiðangri Hafrannsóknastofnunar. Jóhann segir mikilvægt að halda uppi öflugum rannsóknum á þessu til að við skiljum okkar nánasta umhverfi og hvaða áhrif það hafi á okkar mikilvægustu nytjastofna.
Tengdar fréttir „Erum að sjá mjög afgerandi árangur af fiskverndaraðgerðum í þorski“ Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar, segir að heilt yfir sé verið að nýta flesta, ef ekki alla nytjastofna sjávar þannig að veiðiálaginu er stýrt í samræmi við árgangastyrk þeirra. 11. júní 2015 17:25 Þorskkvótinn ekki meiri síðan um aldamót Hafrannsóknastofnun kynnti í dag skýrslu sína um nytjastofna sjávar við Íslandsstrendur og aflahorfur fyrir fiskveiðiárið 2015/2016. 11. júní 2015 15:09 Ískalt haf og enginn makríll Hitastig sjávar við Ísland hefur ekki verið lægra síðan 1997, samkvæmt mælingum Hafró. Áta er undir meðallagi. 8. júní 2015 07:00 Stærsti hrygningarstofn þorsks síðan árið 1962 Hafrannsóknastofnun leggur til kvótaaukningu sem gæti aukið útflutningsverðmæti um sextán milljarða króna 11. júní 2015 21:00 Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Fleiri fréttir „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Sjá meira
„Erum að sjá mjög afgerandi árangur af fiskverndaraðgerðum í þorski“ Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar, segir að heilt yfir sé verið að nýta flesta, ef ekki alla nytjastofna sjávar þannig að veiðiálaginu er stýrt í samræmi við árgangastyrk þeirra. 11. júní 2015 17:25
Þorskkvótinn ekki meiri síðan um aldamót Hafrannsóknastofnun kynnti í dag skýrslu sína um nytjastofna sjávar við Íslandsstrendur og aflahorfur fyrir fiskveiðiárið 2015/2016. 11. júní 2015 15:09
Ískalt haf og enginn makríll Hitastig sjávar við Ísland hefur ekki verið lægra síðan 1997, samkvæmt mælingum Hafró. Áta er undir meðallagi. 8. júní 2015 07:00
Stærsti hrygningarstofn þorsks síðan árið 1962 Hafrannsóknastofnun leggur til kvótaaukningu sem gæti aukið útflutningsverðmæti um sextán milljarða króna 11. júní 2015 21:00