Sakar SFS um hugleysi Birgir Olgeirsson skrifar 6. mars 2015 12:33 Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður, segir það dæmi um hugleysi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi að vilja ekki mæta sér á fundi um sjávarútvegsmál. Vísir/Vilhelm/GVA „
Mér finnst þetta hugleysi af þeirra hálfu og til marks um að þeir vilja ráða og ríkja en þora ekki efnislega umræðu um málið,“ segir Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður og núverandi ritstjóri Vestfjarða vikublaðs, um þá ákvörðun Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) að vilja ekki mæta til fundar um sjávarútvegsmál vegna kröfu Pírata um að Kristinn yrði einn af frummælendum fundarins. Karen Kjartansdóttir, upplýsingafulltrúi SFS, sagði í samtali við Vísi í gær að samtökin hefðu ekki áhuga á fundi með Kristni og töldu ólíklegt að nærvera Kristins myndi skila einhverju. Nefndi Karen sem dæmi orðfæri Kristins í því samhengi.Sjá einnig:„Þeir lögðu til Kristin og við höfðum ekki áhuga á fundi með honum“Telur forstjóra Samherja gera samtökunum lítið gagn „Það er nú fátt um skýringar hjá henni þannig að það er ekki gott að svara því,“ segir Kristinn og bætir við: „Mér finnst orðfæri ýmissa ráðamanna í sjávarútvegsfyrirtækjum vera þannig að LÍÚ mætti gjarnan sín vegna halda þeim til hlés. Þar á ég við menn eins og forstjóra Samherja sem ég held að geri samtökunum lítið gagn með orðfæri sínu.“ Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi voru stofnuð 31. október síðastliðinn með sameiningu Landssambands íslenskra útvegsmanna(LÍÚ) og Samtaka fiskvinnslustöðva(SF) en SFS eru ein af sex aðildarsamtökum Samtaka atvinnulífsins.Hefði viljað mæta SFS Kristinn segist annars vel treysta sér í málefnalega umræðu við forsvarsmenn SFS um sjávarútveg. „Ég hefði gjarnan viljað það og treyst mér í það. Ég tel mig vera í stakk búinn til að ræða málefni og aðskilja það frá persónum.“ SFS hafði unnið að framhaldsfundi um sjávarútvegsmál ásamt Pírötum eftir að samtökin mættu ekki á fund Pírata í febrúar síðastliðnum líkt og auglýst hafði verið. Ástæðan sem samtökin gáfu fyrir fjarverunni var aðkomu Ólafs Jónssonar, sem kallar sig Óla ufsa, að fundinum og töldu samtökin það minnka líkurnar á málefnalegum umræðum.
Tengdar fréttir „Þeir lögðu til Kristin og við höfðum ekki áhuga á fundi með honum“ Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi neituðu að sitja fund um sjávarútvegsmál með Kristni H. Gunnarssyni, fyrrverandi þingmanni. 5. mars 2015 11:00 Töldu ólíklegt að málefnalegar umræður yrðu á fundi Pírata Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi afboðuðu sig á fund Pírata með dags fyrirvara vegna annars frummælanda. 3. febrúar 2015 17:46 Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Fleiri fréttir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Sjá meira
„Þeir lögðu til Kristin og við höfðum ekki áhuga á fundi með honum“ Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi neituðu að sitja fund um sjávarútvegsmál með Kristni H. Gunnarssyni, fyrrverandi þingmanni. 5. mars 2015 11:00
Töldu ólíklegt að málefnalegar umræður yrðu á fundi Pírata Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi afboðuðu sig á fund Pírata með dags fyrirvara vegna annars frummælanda. 3. febrúar 2015 17:46