Líbanon lokar á sýrlenskt flóttafólk Guðsteinn Bjarnason skrifar 6. janúar 2015 07:00 Risastórar flóttamannabúðir hafa risið á strjálbýlum svæðum í Líbanon. fréttablaðið/AP
Líbanon hóf í gær framkvæmd fjöldatakmarkana á straum flóttamanna frá Sýrlandi. Almenningsálitið hefur snúist gegn sýrlenska flóttafólkinu, sem streymt hefur þangað í stórum stíl síðustu misserin. „Við erum búnir að fá nóg. Það er engin geta lengur til þess að hýsa fleira fólk á vergangi,“ segir Nohad Machnúk innanríkisráðherra. Frá því borgarastríðið í Sýrlandi hófst árið 2011 hafa allt að ein og hálf milljón manna flúið til Líbanons. Fyrir voru í landinu um það bil fjórar og hálf milljón íbúa, þannig að nú er einn af hverjum fjórum íbúum landsins flóttamaður frá Sýrlandi. Nýjar reglur tóku gildi í gær, þar sem Sýrlendingar fá vegabréfsáritanir þegar þeir koma til landsins, auk þess sem dvalarleyfi verða bundin við mun styttri tíma en til þessa. Vegabréfsáritanirnar eru í nokkrum flokkum eftir því hvaða erindi fólkið á til Líbanons. Meðal flokka má nefna ferðamennsku, viðskipti, menntun og læknisaðstoð. Ekki er sjáanlegt að þar sé gert ráð fyrir neinum hælisleitendum. Gömlu reglurnar hafa verið í gildi áratugum saman, en samkvæmt þeim fengu Sýrlendingar án vandkvæða sex mánaða vegabréfsáritanir. Þar að auki gátu flestir valsað fram og til baka yfir landamærin, athugasemdalaust. „Við erum að skoða þessar nýju reglur af nokkrum áhuga, því þar er ekkert minnst á samkomulag við stjórnina um að þeir berskjölduðustu fái áfram að koma yfir landamærin,“ hefur AP fréttastofan eftir Ron Redmond, talsmanni flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNHCR. Þar er meðal annars átt við einstæðar mæður, sem flýja með börn sín. Ennfremur þá sem þurfa á brýnni læknisaðstoð að halda og börn sem orðið hafa viðskila við fjölskyldur sínar. Líbanon er lítið land, ekki nema tíu þúsund ferkílómetrar, eða lítið eitt stærra en Vestfjarðakjálkinn. Það munar því um hálfa aðra milljón flóttamanna, sem streymt hafa til landsins á örfáum misserum. Risastórar tjaldborgir hafa risið á strjálbýlum svæðum, auk þess sem eftirspurn eftir húsnæði í borgum og bæjum hefur snaraukist. Leiguverð hefur hækkað verulega og álag á orku- og vatnsveitur hefur aukist gífurlega. Heimamenn tóku flóttafólkinu í fyrstu fagnandi og buðu fram aðstoð sína, en eftir því sem stríðið í Sýrlandi hefur dregist meira á langinn hefur þolinmæðin þrotið hjá mörgum.
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira