Jón Steinar telur að pólitíkusar eigi að skipa dómara við Hæstarétt Jakob Bjarnar skrifar 8. júní 2015 14:39 Jón Steinar er ómyrkur í máli um það sem hann segir ófremdarástand innan Hæstaréttar Íslands.
Brynjar Níelsson þingmaður spurði Jón Steinar Gunnlaugsson lögmann hvort færa eigi skipunarvald dómara úr höndum stjórnmálamanna, í því skyni að minnka spillingu, á opnum fundi. Svör Jóns Steinars voru afgerandi: Nei! Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður, og fyrrverandi hæstaréttardómari, kom víða við í erindi sem hann flutti 20. maí síðast liðinn, en erindið er nú aðgengilegt á YouTube. Jón Steinar setti fram harða gagnrýni á Hæstarétt, sem lesa má um í nýlegri bók hans Í krafti sannfæringar, og kom inn á atriði svo sem ósamræmi og óvandaða dóma, fjölskyldustemmingu sem Jón Steinar telur ríkjandi meðal dómara við réttinn og svo hreinlega það sem kalla má á mannamáli; skítadíla milli dómara. „Þú getur nú verið mér sammála núna, Jón Steinar. Ég var sammála þér um daginn,“ segir Jón Steinar og spyr hverskonar vitleysa þetta sé eiginlega? Menn verði að geta treyst því að hver maður fái réttláta úrlausn við Hæstarétt.Brýnasta úrlausnarefni samfélagsins Ekkert nýtt er að Jón Steinar láti Hæstarétt heyra það en hann hefur til að mynda sakað réttinn um að dæma bara eins og vindarnir blása, og má þá segja að það hrikti í stoðum réttaríkisins, eigi sú gagnrýni við rök að styðjast. Jón Steinar ætti að þekkja til hvernig kaupin gerast á eyrinni.„Þjóðin, og þá ekki síst þeir sem sitja á Alþingi Íslendinga, verður að skilja að þetta er eitt brýnasta, ég segi brýnasta, verkefnið í þjóðmálunum; að koma Hæstarétti landsins í lag. Þannig að menn þurfi ekki að eiga þaðan von á óvönduðum úrlausnum eins og verið hefur. Ég hef þá bjargföstu trú að ef allt er í lagi á þessari endastöð í réttarkerfinu verði svo margt annað í lagi í samfélaginu líka,“ sagði Jón Steinar í lok síns erindis og ljóst má vera að þetta er honum hjartans mál. Jón Steinar hefur látið í ljósi þá skoðun að honum þyki þetta brýna málefni ekki vera eins ofarlega á baugi og efni standa til.Óvænt spurning Í lok erindis var orðið laust og fyrirspurnir leyfðar. Spurning Brynjars Níelssonar alþingismanns, og fyrrverandi formanns Lögmannafélagsins, hlýtur að vekja athygli en hún er sú hvort Jón Steinar spyr: „Hvaða skoðun hefur þú á því sjónarmiði að færa eigi skipunarvald dómara úr höndum stjórnmálamanna, í því skyni að minnka spillingu?“ Skilja mætti spurningu alþingismannsins svo að hann telji það bjóða spillingunni heima að dómsmálaráðherra skipi dómara eins og verið hefur. Í það minnsta gefur Brynjar boltann upp og Jón Steinar sparkar fast í hann. Þá hlýtur spurning Brynjars einnig að tengjast þeirri umræðu sem var mikil á sínum tíma þegar Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherra var (og er) legið á hálsi að hafa komið Jóni Steinari sjálfum inn í hæstarétt sem og Ólafi Berki Þorvaldssyni hæstaréttardómara. Svar Jóns Steinars er afgerandi:Brynjar gaf boltann upp, með óvæntri spurningu. Jón Steinar tók boltann á lofti og sparkaði fast í hann.Algjör vitleysa að láta þá sem enga ábyrgð hafa ráða þessu „Ætli sé ekki bara best að fela ákvarðanir í hendur þeirra sem bera enga ábyrgð á því sem þeir ákveða?“ spurði Jón Steinar fremur háðskur í bragði, á móti. Og hélt svo áfram: „Auðvitað er þetta bara liður í þessari samfélagsumræðu sem fer oft bara að ganga undir sjálfri sér. Það hlýtur að vera að alþingismenn sem eru kosnir af þjóðinni og bera ábyrgð gagnvart henni, og ráðherrar sem sækja vald sitt með óbeinum hætti til þjóðarinnar í gegnum þingið, beri ábyrgð, augljósa ábyrgð á ákvörðunum sínum um þetta. Frekar heldur en einhver nefnd sem skipuð hefur verið af einhverjum aðilum; tilnefnt af Lögmannafélaginu einn eða eitthvað svona fíneríi sko, að hún sé ónæm fyrir einhverjum svona áhrifum? Af því að það eru ekki pólitíkusar sem skipa hana. Þetta er að mínu mati bara tóm vitleysa. Það er alveg ljóst að þeir sem eru tilnefndir af einhverjum aðilum úti í bæ geta misfarið með vald sitt rétt eins og hinir. Munurinn er bara sá að þeir bera enga ábyrgð á því. Það er einhver nafnlaus ábyrgð. Og það er staðreynd að þjóðin dregur alþingismenn sína frekar til ábyrgðar, þeir eru valdir til þess af þjóðinni og eiga að fara með valdið.“
Tengdar fréttir Færri dómara og færri mál til að efla réttinn Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómari kallar eftir samstöðu um fækkun dómara við Hæstarétt og að færri mál rati þangað vegna álags á réttinn. Hann gagnrýnir harðlega að tími málflutnings hafi verið skorinn niður hjá réttinum. 21. maí 2015 18:45 Jón Steinar var höfundur „nafnlausa bréfsins“ fræga Jón Steinar Gunnlaugsson upplýsir í nýrri bók að hann hafi skrifað nafnlaust bréf sem fór eins og eldur í sínu um netheima á tímum Baugsmálsins. 9. október 2014 17:00 Segir hóp lögfræðinga stjórna Hæstarétti „Það sem er að í okkar dómskerfi er að hér eru menn skipaðir í dómarastarf án þess að nokkur viti áður fyrirfram hvaða skoðanir menn hafa á grundvallaratriðum á starfsháttum dómsstóla,“ segir Jón Steinar. 14. október 2014 11:16 Veltir því upp hvort tengsl við dómara hafi tryggt sýknudóm "Sá maður sem viðhafði þessi ummæli er sonur lögmanns hér í bænum sem er mikill persónulegur vinur einstaklinga við þennan dómsstól," segir Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi dómari við Hæstarétt Íslands. 26. nóvember 2014 19:58 Sér eftir að hafa fallið frá kröfu um rannsókn á Hæstarétti Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi dómari við Hæstarétt segist sjá eftir því að hafa fallið frá kröfu um rannsókn á ætlaðri misnotkun valds dómara við réttinn sumarið og haustið 2004. 19. janúar 2015 12:00 Segir Markús ráða því sem hann vill ráða í Hæstarétti Jón Steinar Gunnlaugsson varpar spegli í salarkynni Hæstaréttar í nýrri bók. 9. október 2014 17:00 Jón Steinar heldur erindi um Hæstarétt Fundurinn er haldinn að frumkvæði Jóns Steinars sjálfs. 15. maí 2015 12:00 Jón Steinar opnar sig um Hæstarétt Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, varpar spegli í salarkynni Hæstaréttar í nýrri bók sinni. Jón Steinar ræddi um efni bókarinnar í viðtali við Ísland í dag fyrr í kvöld. 9. október 2014 21:02 Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Innlent Fleiri fréttir Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Sjá meira
Færri dómara og færri mál til að efla réttinn Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómari kallar eftir samstöðu um fækkun dómara við Hæstarétt og að færri mál rati þangað vegna álags á réttinn. Hann gagnrýnir harðlega að tími málflutnings hafi verið skorinn niður hjá réttinum. 21. maí 2015 18:45
Jón Steinar var höfundur „nafnlausa bréfsins“ fræga Jón Steinar Gunnlaugsson upplýsir í nýrri bók að hann hafi skrifað nafnlaust bréf sem fór eins og eldur í sínu um netheima á tímum Baugsmálsins. 9. október 2014 17:00
Segir hóp lögfræðinga stjórna Hæstarétti „Það sem er að í okkar dómskerfi er að hér eru menn skipaðir í dómarastarf án þess að nokkur viti áður fyrirfram hvaða skoðanir menn hafa á grundvallaratriðum á starfsháttum dómsstóla,“ segir Jón Steinar. 14. október 2014 11:16
Veltir því upp hvort tengsl við dómara hafi tryggt sýknudóm "Sá maður sem viðhafði þessi ummæli er sonur lögmanns hér í bænum sem er mikill persónulegur vinur einstaklinga við þennan dómsstól," segir Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi dómari við Hæstarétt Íslands. 26. nóvember 2014 19:58
Sér eftir að hafa fallið frá kröfu um rannsókn á Hæstarétti Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi dómari við Hæstarétt segist sjá eftir því að hafa fallið frá kröfu um rannsókn á ætlaðri misnotkun valds dómara við réttinn sumarið og haustið 2004. 19. janúar 2015 12:00
Segir Markús ráða því sem hann vill ráða í Hæstarétti Jón Steinar Gunnlaugsson varpar spegli í salarkynni Hæstaréttar í nýrri bók. 9. október 2014 17:00
Jón Steinar heldur erindi um Hæstarétt Fundurinn er haldinn að frumkvæði Jóns Steinars sjálfs. 15. maí 2015 12:00
Jón Steinar opnar sig um Hæstarétt Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, varpar spegli í salarkynni Hæstaréttar í nýrri bók sinni. Jón Steinar ræddi um efni bókarinnar í viðtali við Ísland í dag fyrr í kvöld. 9. október 2014 21:02