Innlent

Jón Steinar var höfundur „nafnlausa bréfsins“ fræga

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómari.
Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómari.
Jón Steinar Gunnlaugsson varpar sprengju í nýrri bók, „Í krafti sannfæringar - Saga lögmanns og dómarar“ þegar hann upplýsir í fyrsta skipti að hann hafi verið  höfundur greinarinnar „Einnota réttarfar“ sem fór eins og eldur um sinu um internetið árið 2007 þegar dómar um frávísun ákæruliða í Baugsmálinu höfðu verið kveðnir upp. 

Í bréfinu var sett fram hvöss gagnrýni á Hæstarétt en bréfritari taldi að Hæstiréttur væri að gera miklu strangari kröfur til ákæruskjala í umræddu sakamáli en rétturinn hefði almennt gert. Þar voru jafnframt settar fram hugleiðingar um þetta og látið í veðri vaka að Hæstiréttur hefði sveiflast með almenningsálitinu og fjölmiðlum þegar dómar um frávísun voru kveðnir upp. 

Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari, óskaði eftir fundi með verjendum og dómurum í málinu vegna bréfsins. Hann taldi bréfið skaða sókn málsins. 

Jón Steinar upplýsir um það að hann hafi fyrst skrifað bréfið fyrir sjálfan sig. Síðan hafi vinur hans óskað eftir eintaki af því og eftir það hafi bréfið farið í umferð. 

Hann útskýrir jafnframt hvers vegna hann hafi skrifað bréfið en um leið sakar hann samstarfsmenn sína í Hæstarétti um misnotkun valds. 

„Ég hef alltaf átt afar erfitt með að þegja, þegar ég tel mig verða að vitni að eins skýrri misnotkun á opinberu valdi og hér var raunin. Og hér var verið að misbeita þeirri stofnun ríkisins sem ég tel mikivægasta, Hæstarétti,“ -bls. 237.

Í Íslandi í dag í kvöld verður rætt við Jón Steinar um efni bókarinnar. Kl. 18:50 í opinni dagskrá á Stöð 2, strax að loknum fréttum. Þar mun hann m.a svara fyrir bréfið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×