Hefja leit neðansjávar í dag 2. janúar 2015 08:29 Brak úr vélinni fundið Dwi Putranto, yfirmaður í indónesíska flughernum, sýnir ferðatösku og annað sem fannst á floti í Jövuhafi. Fréttablaðið/AP
Leit neðansjávar að flaki farþegaþotu AirAsia sem fórst í Jövuhafi á sunnudag hefst í dag. Sérhæfður leitarflokkur frá Frakklandi er kominn á staðinn með tæki og tól sem notuð eru til þess að finna svörtu kassa flugvélarinnar sem gefa upplýsingar um hvað varð þess valdandi að vélin fórst. Vélin var á leið frá Surabaya í Indónesíu til Singpore þegar hún hvarf af ratsjám í slæmu veðri. Þegar er búið að finna nokkur lík á floti í sjónum en 162 voru um borð í vélinni þegar hún fórst. Í morgun fundust nokkur lík til viðbótar og hafa þá sextán fundist í allt. Enginn hefur fundist á lífi. Talið er líklegt að skrokkurinn sé á botni Jövuhafs en þar er dýptin ekki mikil og því ríkir bjartsýni á meðal leitarmanna að hægt verði að finna vélina. Slæmt veðurá leitarsvæðinu hefur þó hamlað leitarstörfum síðustu daga. Þegar er búið að bera kennsl á eitt líkanna, var það farþegi frá Indónesíu og var jarðarför hennar haldin í Surabaya í gær. Svo virðist sem flugstjórinn hafi verið að reyna að forðast að lenda í slæmu veðri og hafði hann beðið um heimild til að hækka flugið rétt áður en vélin fórst. Sérfræðingar telja líklegt að hann hafi reynt að hækka sig á allt of skömmum tíma og þannig hafi hún ofrisið og við það hrapað í sjóinn.
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Sjá meira