156 af 157 læknanemum fengu hæstu mögulegu einkunn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. janúar 2015 09:43 Læknanemi við háskólann í Árósum við lestur á bókasafni skólans. Myndin er af Fésbókarsíðu háskólans
156 af 157 læknanemum við háskólann í Árósum í Danmörku fengu hæstu einkunn í prófi sem þeir þreyttu á dögunum. Ástæðan var einföld. Nemarnir höfðu spurningarnar og svörin með sér í prófið. Prófað var í þekkingu læknanemanna á hjarta, lunga og æðum. Nemendur hafa aðgang að eldri prófum og mega taka þau með sér í prófið og svörin líka. Í þetta skiptið höfðu kennararnir ekki einu sinni fyrir því að semja nýjar spurningar heldur var prófið í heild sinni samsett úr eldri spurningum. Aðeins einum nemenda tókst ekki að svara öllum spurningum prófsins rétt en 156 af 157 fengu hæstu mögulegu einkunn sem er tólf í danska skólakerfinu. Kristjar Skajaa, formaður læknadeildar, segir að deildin verði að gera opinber eldri próf. Því sé ekkert athugavert við að nemendur hafi þau með sér í prófin. Öll gögn séu leyfð í prófinu.Engin ástæða til að efast um hæfni nemendanna „En eins og ég skrifaði í tölvupósti til nemendanna, þar sem ég baðst afsökunar, þá er ljóst að þetta eru alfarið okkar mistök. Við notuðum eldri spurningar en það hefðum við ekki átt að gera.“ Skajaa segir að ekki megi endurnýta spurningar fyrr en kominn sé gagnabanki með um 10 þúsund spurningum. Hins vegar hafi aðeins verið um 400 spurningar í gagnbanka deildarinnar fyrir prófið sem fram fór síðastliðinn föstudag. Einkunn nemendanna verður ekki breytt og ekki verður haldið annað próf. Ástæðan, segir Skajaa, er sú að nemendurnir gerðu ekkert rangt. Hann segir enga ástæðu til að efast um hæfni þeirra þrátt fyrir að útkoma prófsins sé ekki marktæk.Nánar um málið á vef Berlingske.
Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Erlent Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Erlent 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Innlent Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Innlent Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Erlent Fleiri fréttir Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Sjá meira