Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, er um þessar mundir staddur á alþjóðlegri ráðstefnu um fjármögnun þróunarsamvinnu. Ráðstefnan fer fram dagana 13.-16. júlí í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu, en um leið varð Gunnar Bragi fyrsti ráðherra ríkisstjórnarinnar til að ferðast til Afríku.
Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að í gær hafi ráðherrann flutt ávarp á málstofu á vegum SE4ALL (sjálbær orka fyrir alla). Í ávarpinu lagði hann áherslu á mikilvægi jarðhitanýtingar í þróunarsamvinnu og greindi frá áherslum og stuðningi Íslands á því sviði.
Einnig sagði hann frá frumkvæði Íslands og IRENA samtakanna um stofnun samstöðuhóps um nýtingu jarðhita á heimsvísu. Þeim hópi verður ýtt úr vör í París í desember. Auk Gunnars Braga ávörpuðu Ban Ki-Moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og Jim Yong Kim, forseti Alþjóðabankans, málstofuna.
Ráðherrann tók einnig þátt í málstofu um fjárfestingu í jafnrétti kynjanna. Í erindi sínu lýsti hann yfir ánægju með hversu vel hafi tekist til að samþætta kynjasjónarmið í gegnum allt samningaferlið um fjármögnun þróunarsamvinnu.
Í kjölfar ráðstefnunnar mun Gunnar Bragi ferðast til Malaví þar sem hann mun funda með ráðamönnum og heimsækja verkefni Íslands á sviði þróunarsamvinnu.
Utanríkisráðherra í Eþíópíu á ráðstefnu um þróunarsamvinnu

Tengdar fréttir

Ræða Gunnars Braga nú grípandi popplag
Gunnar Bragi Sveinsson er orðinn poppstjarna.

Sitjandi ríkisstjórn meira á flakki en sú sem var á undan henni
Gunnar Bragi Sveinsson er ferðast mest að ráðherrum síðustu og núverandi stjórnar. Kostnaður við ferðalög stjórnanna á fjögurra ára tímabili nemur minnst 260 milljónum króna.

Borgarstjóri og ráðherra rífast um Hvassahraun: „Þið ætlið að hrekja völlinn í burtu“
Gunnar Bragi Sveinsson segir borgina eiga að bera kostnaðinn af framkvæmdum í Hvassahrauni.

Gunnar Bragi ræddi varnarmál í Pentagon
Fundaði í gær með aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna.