Heiðursgesti bannað að tala guðsteinn bjarnason skrifar 10. mars 2015 07:00 Utanríkisráðherra Svíþjóðar var boðið til fundarins sem heiðursgesti. fréttablaðið/EPA
Margot Wallström, utanríkisráðherra Svíþjóðar, segir að Sádi-Arabía hafi komið í veg fyrir að hún flytti ræðu á ráðherrafundi Arababandalagsins, sem haldinn var í Kaíró í Egyptalandi í gær. Wallström hugðist nota tækifærið til að leggja áherslu á mannréttindi og fagna sérstaklega þeim árangri sem náðst hefur í réttindabaráttu kvenna. Sádi-Arabía brást hins vegar hart við afstöðu sænskra stjórnvalda til lýðræðis og mannréttinda. Í viðtali við fréttastofuna TT segist Wallström hafa fengið þær skýringar að Sádi-Arabía hafi lagst gegn því að hún flytti ræðu sína vegna þess hve mikla áherslu Svíþjóð hefur lagt á lýðræði og mannréttindi: „Það er skammarlegt að eitt ríki hafi komið í veg fyrir þátttöku mína.“ Wallström hafði verið boðið til ráðstefnunnar sem heiðursgesti. Hún hefur gagnrýnt þær „miðaldarefsingar“ sem sádiarabíski bloggarinn Raef Badaví hefur mátt þola fyrir að hafa sýnt íslamskri trú lítilsvirðingu. Fyrir þann glæp var hann dæmdur til tíu ára fangelsis og til þess að þola þúsund svipuhögg. Stutt er þangað til umdeildur samningur um vopnasölu frá Svíþjóð til Sádi-Arabíu rennur út. Í viðtali við sænska ríkissjónvarpið segist Wallström ekki vera viss um það hvort atvikið í Kaíró muni hafa áhrif á endurnýjun samningsins.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán