Loka skíðabrekkum af ótta við málsóknir Samúel Karl Ólason skrifar 5. janúar 2015 14:21 Þrátt fyrir að það geti verið gaman að renna sér niður brekkur, er það víða orðið lögbrot. Vísir/AP
Embættismenn víða um Bandaríkin hafa tekið þá ákvörðun að banna frekar börnum að renna sér á sleðum á opinberjum lóðum, en að eiga möguleika á málaferlum vegna slysa. Í borginni Dubuque í Iowa er einungis leyfilegt að renna sér í tveimur görðum borgarinnar af 50. Samkvæmt AP fréttaveitunni eru ekki til opinberar tölur um fjölda borga sem hafa lokað vinsælum sleðabrekkum, en þó segir á vef AP að þeim fari sífellt fjölgandi. Rannsókn sem framkvæmd var af Columbus barnaspítalanum segir til um að á árunum 1997 til 2007 hafi meira en tuttugu þúsund börn verið flutt á bráðamóttöku árlega vegna sleðaslysa. Borgarráð Dubuque fjallaði um málið áður en bannið var sett á. Í umfjöllun ráðsins kom í ljós að á síðasta áratugi hafi fjölda mála verið höfðað gegn hinu opinbera. Borgin Omaha í Nebraska þurfti að borga tvo milljarða dala þegar fimm ára stelpa lamaðist við að renna á tré. Þá þurfti Sioux City að borga 2,75 milljónir dala eftir að maður skaddaði mænu sína við að renna á skilti. Mismunandi leiðir eru þó farnar í borgum Bandaríkjanna. Sumstaðar hefur allsherjar sleðabann verið sett á. Þá hafa sumstaðar verið sett upp skilti sem vara við hættu og segja að fólk leiki sér á sleðum á eigin ábyrgð. Í borginni Paxton í Illinois, var heil sleðabrekka fjarlægð árið 2013. Í Omaha var fólki bannað að renna sér niður vinsæla brekku eftir að borgin tapaði skaðabótamáli vegna slyss þar. Íbúar borgarinnar hlýddu banninu þó ekki svo það var afnumið. Þess í stað setti borgin dempara á staura og heybala í kringum tré. Lögmaður borgarinnar segir AP að samkvæmt dómstólum í Nebraska sé það á ábyrgð hins opinbera að vernda íbúa, þrátt fyrir að þau taki slæmar ákvarðanir.
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira