Níu ára drengur handtekinn vegna tyggjópakka Samúel Karl Ólason skrifar 13. janúar 2015 11:02 Saksóknarinn Barry McHugh segist sjá eftir þessu máli og að drengurinn hafi verið handtekinn. Vísir/Getty
Lögregluþjónar í Idaho í Bandaríkjunum handtóku níu ára dreng fyrir að mæta ekki í dómsal. Þar átti að rétta yfir honum fyrir að hafa stolið tyggjópakka síðastliðið sumar. Lögreglustjórinn segir handtökuskipunina vera skrítna.CNN hefur eftir lögreglustjóranum Scott Haug, að handtökuskipunin hafi verið gefin út eftir að drengurinn mætti ekki fyrir dóm í tvö skipti, þar sem rétta átti yfir honum. Hann segir að drengurinn hafi ekki verið handjárnaður við handtöku og að vel hafi verið komið fram við hann. Nú hefur lögreglan komist að því að drengurinn hafi ekki mætt fyrir dómara vegna þess að móðir hans hafi ekki getað útvegað sér farartæki. „Ef við hefðum vitað það, hefðum við hjálpað þeim,“ segir Haug. Saksóknarinn Barry McHugh segist sjá eftir þessu máli og að drengurinn hafi verið handtekinn. „Eftir að hafa farið yfir málið, hef ég komist að þeirri niðurstöðu að gerð handtökuskipunarinnar hafi verið mistök undir þessum kringumstæðum,“ hefur USA Today eftir saksóknaranum. Hann sagði að drengurinn hefði ekki verið færður í fangageymslu og að honum hefði verið sleppt á föstudaginn, sama dag og hann var handtekinn. McHugh segist sjá eftir þessu og að hann muni reyna að koma í veg fyrir slík mistök í framtíðinni. Hann sagðist ekki vera viss um hvort að móðir drengsins yrði ákærð vegna málsins.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Fleiri fréttir Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sjá meira