Veittu styrki til rannsókna í barnalækningum Atli Ísleifsson skrifar 28. maí 2015 09:57 Ásgeir Haraldsson, prófessor í barnalækningum, Guðrún Scheving Thorsteinsson, dóttir Bents og Margaretar Scheving Thorsteinsson, stofnenda sjóðsins, Margaret Scheving Thorsteinsson, Michael Clausen, Sigurveig Þóra Sigurðardóttir, Tryggvi Helgason og Magnús Karl Magnússon, forseti Læknadeildar Háskóla Íslands. Mynd/Háskóli Íslands
Verkefni sem snýr að börnum sem glíma við offitu og fjölskyldum þeirra og rannsóknarverkefni um fæðuofnæmi hjá íslenskum börnum hlutu styrk úr Verðlaunasjóði Óskars Þórðarsonar læknis í Háskóla Íslands miðvikudaginn 27. maí. Í tilkynningu frá Háskóla Íslands segir að verkefnin hafi þegar skilað afar áhugaverðum niðurstöðum en heildarupphæð styrkjanna nemur 800 þúsund krónum. Þetta er í sjötta skipti sem veittar eru viðurkenningar úr Verðlaunasjóði Óskars Þórðarsonar læknis en sjóðurinn hefur það markmið að veita verðlaun fyrir vísindaleg afrek, rannsóknir, ritgerðir og skylda starfsemi á sviði barnalækninga. „Ragnar Bjarnason, yfirlæknir barnalækninga á Landspítala og prófessor við Læknadeild, og Tryggvi Helgason, sérfræðingur í barnalækningum, hljóta 500 þúsund króna styrk til að vinna að rannsóknarverkefninu „Heilsuskóli Barnaspítalans“. Heilsuskólinn er meðferðarteymi fyrir börn með offitu og fjölskyldur þeirra. Sjónunum er beint að lífsvenjum barnanna og farið yfir hvað betur má fara til að bæta lífsgæði og líðan þeirra. Markmiðið er að þær breytingar sem fjölskyldan gerir á lífi sínu skili sér í að barnið vaxi í lengd hraðar en þyngd. Teymið var stofnað í núverandi mynd árið 2011 og sex fagstéttir koma að því. Frá upphafi hefur teymishugsun verið kjarninn í starfseminni og náin samvinna hefur verið milli fagstéttanna við að þróa og byggja upp meðferð fyrir þennan skjólstæðingahóp. Nýleg samantekt sýnir að tekist hefur að bæta bæði lífsgæði og þyngdarstöðu þeirra barna sem hafa nýtt sér meðferðina. Stefnt er að stækkun teymisins svo hægt verði að sinna fleiri börnum með offitu, auka rannsóknir á þessu sviði og styðja í auknum mæli við vinnu á þessu sviði sem fram fer á heilsugæslustöðvum vítt og breitt um landið. Ragnar Bjarnason hefur einkum stundað rannsóknir á áhrifum vaxtarhormóns, sykursýki barna og unglinga ásamt offitu barna. Hann lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands 1985 og doktorsprófi frá Gautaborgarháskóla 1997. Tryggvi Helgason starfar á Barnaspítala Hringsins og á læknastofu í Domus Medica. Hann lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands 1997 og sérmenntaði sig barnalækningum í Hollandi. Sigurveig Þóra Sigurðardóttir, klínískur dósent við Háskóla Íslands og sérfræðingur í barnalækningum og ofnæmis- og ónæmislækningum, og Michael Clausen, barnalæknir og sérfræðingur í ofnæmissjúkdómum barna, hljóta 300 þúsund króna styrk til verkefnisins „Fæðuofæmi hjá íslenskum börnum“.Á bilinu 1-2% fullorðinna Evrópubúa þjást af fæðuofnæmi. Fæðuofnæmi er hins vegar algengara hjá börnum en það finnst hjá 5-8% þeirra og er áhyggjuefni þegar þau fara í leikskóla og skóla þar sem oft er um alvarlegt ofnæmi að ræða. Sigurveig og Michael hafa tekið þátt í tveimur evrópskum rannsóknaverkefnum sem snúa að fæðuofnæmi hjá börnum: EuroPrevall-verkefnið, sem hlaut styrk úr 6. rammaáætlun Evrópusambandsins, beindist að fæðuofnæmi til tveggja og hálfs árs aldurs og hjá skólabörnum. Rannsóknartilgátan var að samspil umhverfisþátta, matarvenja og erfðaþátta verði til þess að fæðuofnæmi myndist. Um 3,3% þeirra íslensku barna, sem tóku þátt í rannsókninni, reyndust fá sannanlegt fæðuofnæmi til tveggja og hálfs árs aldurs og 4,7% skólabarna voru greind af lækni með fæðuofnæmi. iFAAM er eftirfylgnirannsókn EuroPrevall og hlaut styrk úr 7. rammaáætlun Evrópusambandsins. Þar er börnum sem tóku þátt í EuroPrevall frá fæðingu fylgt eftir við átta ára aldur. Þátttakendur svara spurningalista og er jafnframt boðið að koma í læknisskoðun, ofnæmishúðpróf og blóðprufu. Í iFAAM-rannsókninni er hægt að kanna tengsl mataræðis móður og barns auk annarra áhrifaþátta á fyrstu tveimur árum barnsins við ofnæmissjúkdóma á skólaaldri í þeim tilgangi að finna leiðir til að fyrirbyggja ofnæmi. Rannsókninni lýkur 2017. Sigurveig Þóra Sigurðardóttir starfar við ónæmisfræðideild Landspítalans. Hún lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands 1983, sérfræðinámi í barnalækningum frá University of Hartford í Connecticut í Bandaríkjunum 1989 og sérfræðinámi í ofnæmis- og ónæmislækningum frá University of Pittsburgh, Children’s Hospital í Pittsburgh í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum 1991. Sigurveig hefur starfað við Landspítalann frá 1991. Hún varði doktorsritgerð við Háskóla Íslands 2009. Michael Clausen hefur stundað rannsóknir á ofnæmissjúkdómum barna og fullorðinna. Hann lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands 1987 og varð sérfræðingur í barnalækningum 1993 og ofnæmissjúkdómum barna 1997 eftir framhaldsnám í Svíþjóð. Hann vinnur sem sérfræðingur í barnalækningum og ofnæmissjúkdómum barna á Landspítalanum.Um Verðlaunasjóð Óskars ÞórðarsonarBent Scheving Thorsteinsson stofnaði Verðlaunasjóð Óskars Þórðarsonar læknis árið 2000 með veglegri peningagjöf til minningar um Óskar, fóstra sinn. Í desember 2007 bætti Bent um betur og lagði til viðbótarframlag við höfuðstól sjóðsins. Eigið fé sjóðsins er um 20 milljónir króna en samtals hefur Bent gefið Háskóla Íslands 60 milljónir króna með stofnun þriggja sjóða sem heyra undir Styrktarsjóði Háskóla Íslands. Hinir sjóðirnir tveir eru Verðlaunasjóður Bergþóru og Þorsteins Schevings Thorsteinssonar lyfsala, sem hefur það að markmiði að veita verðlaun fyrir vísindaleg afrek og styrkja rannsóknir og framhaldsnám í lyfjafræði, og Styrktarsjóður Margaretar og Bents Schevings Thorsteinssonar, sem ætlað er að styðja við rannsóknir á einelti. Óskar Þórðarson barnalæknir brautskráðist frá læknadeild Háskóla Íslands árið 1927, lærði fæðingahjálp í Danmörku síðar sama ár og stundaði sérnám í barnalækningum í Austurríki og Þýskalandi á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar. Hann stofnaði læknastofu í Reykjavík árið 1930 og rak hana til dauðadags árið 1958. Samhliða var Óskar skólalæknir Austurbæjarskóla og Laugarnesskóla, læknir barnaheimilisins Sumargjafar og eftirlitslæknir við barnaheimili Reykjavíkur. Óskar kvæntist Guðrúnu Sveinsdóttur frá Hrauni á Skaga, móður Bents, árið 1928. Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Sjá meira