Veikburða vopnahlé í Úkraínu Guðsteinn Bjarnason skrifar 22. ágúst 2015 07:00 Liðsmenn Azov-sveitanna, sem barist hafa við uppreisnarmenn í austanverðri Úkraínu, æfa sig í Kænugarði. Nordicphotos/AFP
Undanfarnar vikur hafa tugir manna fallið í átökum í austanverðri Úkraínu. Óttast er að vopnahléssamkomulagið frá í febrúar geti verið í andarslitrunum. Gagnkvæmar ásakanir hafa verið um tíð vopnahlésbrot víða á vopnahléslínunni, sem afmarkar svæði uppreisnarmanna í Donbass-héraði. Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, sem fylgist með framkvæmd vopnahléssamkomulagsins, staðfestir að vopnahléið sé rofið oft á degi hverjum og virðast eftirlitsmenn standa ráðalausir gagnvart því. Þá segir stofnunin að uppreisnarmenn, sem Rússar hafa stutt, hafi meinað eftirlitsmönnum aðgang að svæðum, þar sem geyma átti þungavopn sem væru ónotuð meðan vopnahléið væri í gildi. Ekki sé því hægt að ganga úr skugga um að skriðdrekar og þungavopn hafi ekki verið flutt að átakalínunni. Úkraínski stjórnarherinn og vopnaðir hópar, sem barist hafa með honum, hafa sömuleiðis verið sagðir búa sig undir frekari átök með flutningi herliðs og hergagna að vopnahléslínunni. Á blaðamannafundi á þriðjudag sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti, þá staddur á Krímskaga, margt benda til þess að vopnahléssamkomulagið væri að fara út um þúfur, en tók fram að sökin væri hjá stjórnarhernum: „Því miður erum við að sjá það nú, að átök eru að harðna, og sökin liggur ekki hjá sjálfsvarnarsveitunum í Donbass heldur hinum.“ Pútín vildi hins vegar ekkert ræða það hvort Úkraína gæti þegar fram líða stundir hugsanlega endurheimt Krímskaga, sem Rússar innlimuðu fyrr á þessu ári: „Nei, ég vil ekki svara neinu um þetta, vegna þess að framtíð Krímskaga hefur verið ákveðin af íbúunum þar. Þeir greiddu atkvæði með því að endursameinast Rússlandi. Punktur.“ Atburðarásin:22. febrúar 2014 Viktor Janúkóvítsj forseti hrekst úr landi í kjölfar harðvítugra mótmæla. 6. apríl 2014 Stríðsátök hefjast í Donbass-héraði í austanverðri Úkraínu. 18. maí 2014 Rússar innlima Krímskaga eftir þriggja vikna átök. 25. maí 2014 Petró Porosjenkó kosinn forseti. 5. september 2014 Vopnahléssamkomulag undirritað í Minsk í Hvíta-Rússlandi, en fer fljótlega út um þúfur. 11. febrúar 2015 Annað vopnahléssamkomulag undirritað í Minsk af leiðtogum Rússlands, Úkraínu, Þýskalands og Frakklands.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira