Forsprakki kúrdískrar uppreisnarhreyfingar vill ekki stríð Jóhann Óli Eiðsson skrifar 22. mars 2015 23:15 Stuðningsmaður Ocalan stekkur yfir bál í Istanbúl á "nowruz“ hátíðinni. "Nowruz“ er persneskt orð yfir nýár. vísir/ap
Abduallah Ocalan, leiðtogi kúrdískra uppreisnarmanna, hefur biðlað til stuðningsmanna sinna að halda vopnahlé við stjórnarherinn. Ocalan hefur setið í fangelsi síðan árið 1999 en hann situr af sér lífstíðardóm fyrir landráð. Það var því ekki hann sjálfur sem bar stuðningsmönnum sínum skilaboðin heldur tyrkneski þingmaðurinn Sirri Süreyya Önder en hann heimsótti Ocalan í fangelsið á fimmtudag. Yfirlýsingin var lesin upp á fjölmennum útifundi þar sem hundruðir þúsunda Kúrda voru saman komnir. Margir telja að hún komi til með að marka tímamót í deilunni. Þrátt fyrir að hafa setið í fangelsi í bráðum sextán ár er Ocalan enn áhrifamikill meðal Kúrda. Bardagar Tyrkja og fylkinga Kúrda hafa staðið yfir, með hléum, í þrjá áratugi og kostað tugþúsundir manna lífið. Vopnahlé hefur verið í gildi milli fylkinganna frá 2013 og hefur haldið þrátt fyrir að oft hafi litlu munað að allt fari í bál og brand. Flestir sem hafa fallið eru Kúrdar en hluti þeirra vill stofna sjálfstætt ríki og losna undan hæl Tyrkja. Staðan í deilu Tyrkja og Kúrda er eitt erfiðasta málið sem blasir við Tyrkjum. Landsvæði það sem Kúrdar búa á teygir sig að vísu út fyrir Tyrkland og yfir í önnur lönd. Kúrdar finnast í Íran og Írak að ógleymdu Sýrlandi en þeir hafa átt mjög undir högg að sækja þar eftir að Íslamska ríkið tók að herja á þá af miklum þunga. Útifundinn þar sem Önder flutti ræðuna má sjá í myndbandi hér að neðan.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Fleiri fréttir Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Sjá meira