Bildt smyglaði dauðadæmdum blaðamanni frá Afganistan Atli Ísleifsson skrifar 22. janúar 2015 11:59 Carl Bildt lét af embætti utanríkisráðherra Svíþjóðar á síðasta ári eftir átta ár í starfi. Vísir/AFP
Carl Bildt, fyrrverandi utanríkisráðherra Svíþjóðar, smyglaði 25 ára dauðadæmdum karlmanni frá Afganistan árið 2009. Bildt gegndi þá stöðu utanríkisráðherra.Sænska blaðið Expressen segir að maðurinn hafi stundað nám í Afganistan en einnig starfað sem fréttamaður á afgönsku dagblaði. Maðurinn var færður í einkaflugvél sænskra stjórnvalda á flugvelli í höfuðborginni Kabúl þar sem Bildt beið mannsins. „Það var mjög taugatrekkjandi síðustu mínúturnar. Hættan var að afganskir öryggisverðir myndi sjá og skilja hvað væri á seyði.“ Atvikið átti sér stað í einni af ferðum Bildts til Kabúl, höfuðborgar Afganistans, árið 2009. Bildt hafði þá margoft tekið upp mál dauðadæmda mannsins í samtölum sínum við Hamid Karzai, þáverandi forseta Afganistans. Þau samtöl höfðu hins vegar ekki skilað neinum árangri. Fréttamaðurinn starfaði á blaðinu New World og hafði verið dæmdur til dauða eftir að hafa birt gagnrýnar grein um íslam.Leynileg aðgerð Bildt skipulagði þessa leynilegu aðgerð í samráði við þáverandi sendiherra Noregs í Stokkhólmi sem var einn af fulltrúum Sameinuðu þjóðanna í Afganistan. Bildt segir ástæðu þess að aðgerðinni hafi verið haldið leyndri í sex ár hafi verið ótti við pólitískar afleiðingar sem gætu beinst að Svíþjóð, Sameinuðu þjóðunum eða þeim innan afganska stjórnkerfisins sem grunur gæti beinst að því að hafa átt aðild að málinu. „Nú tel ég að þetta skipti minna máli. Ný stjórn í Afganistan. Nýr fulltrúi Sameinuðu þjóðanna. Nýr sænskur utanríkisráðherra,“ segir Bildt. Dauðadæmdi maðurinn var fluttur frá Afganistan til Ósló þar sem tengiliðir voru til staðar. „Nú held ég að hann sé í Bandaríkjunum,“ segir Bildt.
Mest lesið Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis Innlent Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Bein útsending: Daði Már gangsetti vindmyllur Innlent „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Innlent Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Innlent Fiskikóngurinn og Háskólinn rannsaka skötu Innlent Fleiri fréttir Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Sjá meira