"Verðum að hugsa um frið“ Linda Blöndal skrifar 16. maí 2015 19:30
Fólk verður að hugsa um frið og hætta að eyðileggja heiminn með stríði og græðgi, segir jakútíska listakonan Kjuregej Alexandra Argunova sem opnaði sína fjórtándu einkasýningu í dag. Hugsar um friðKjuregej hefur búið hér á landi í fimmtíu ár. Hún er fædd í Jakútíu í Síberíu og verk hennar prýða opinberar byggingar víða um land. Í gamla MÍR salnum við Hverfisgötu í Reykjavík opnaði hún sýningu á þrjátíu og fimm verkum sínum, gerðum úr ýmis konar taui og mósaíkmyndir. Sýningin nefnist Lofsyngjum jörðina og er henni stríð og hungur ofarlega í huga. Hinir ríku halda að þeir ráði ölluKjuregej er mikið niðri fyrir um boðskap sýningarinnar. „Ég hugsa um jörðina sem við búum á. Við erum bara gestir hérna og eigum að haga okkur betur í umgengni við jörðina. Við skulum hugsa um frið og byggja frekar upp auðlindir okkar sem munu hjálpa fólki sem þarf betra líf. En það fer bara allt í vopnakaup og menn eru að sprengja og ræna hér og þar. Þetta gengur ekki lengur, af því við erum komin á 21. öldina þar sem fólk er miklu betur menntað en áður,“ sagði Kjuregej í fréttum Stöðvar tvö þegar litið var inn á sýningaropnun hennar í dag. Stalín sendi föðurinn í stríð„En það hlustar enginn. Þeir sem eiga peninga láta eins og þeir ráði yfir heiminum. Það verður að hætta. Þetta fólk verður að stoppa,“ segir hún. Kjurugej minnist líka seinni heimstyrjaldarinnar sérstaklega en faðir hennar lést í stríðinu. „Ég missti föður minn þegar ég var aðeins tveggja ára gömul. Hann var drepinn í Úkraínu 1941 þegar Stalín smalaði frá Síberíu bestu skyttunum sem kunnu ekki einu sinni rússnesku. Og þeir áttu bara að skjóta annað fólk en var sjálfum slátrað.“ Kjurugej hélt síðast sýningu árið 2011 en sýningarnar eru orðnar margar og einnig hefur hún ekki ósjaldan staðið á sviði og flutt tónlist eða leikið. Þessi sýning tók um tíu ár að setja saman og augljóst að bæði Ísland og Jakútía í Rússlandi eru áhrifavaldarnir. MÍR salurinn er við hæfi enda unnið að menningartengslum Íslands og Rússlands.
Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira