Sænska konan ekki úrskurðuð í gæsluvarðhald Atli Ísleifsson skrifar 20. febrúar 2015 15:41 Lögregla réðst inn á heimili konunnar í Bromölla á Skáni aðfaranótt fimmtudagsins. Vísir/AFP
Dómstóll í Kristianstad á Skáni hefur úrskurðað að konunni sem sökuð er um að hafa haldið þremur dætrum sínum læstum inni í íbúð um margra ára skeið verði sleppt. Lögreglumenn leiddu konuna út úr réttarsalnum eftir að dómari tilkynnti um úrskurðinn eftir að hafa legið yfir gögnum í tvær klukkustundir. „Dæturnar hafa verið sviptar frelsinu gegn vilja sínum, en spurningin er hvort það hafi verið refsivert. Hún er ekki búin að læsa dæturnar inni. Þetta hefur verið andleg þvingun,“ sagði saksóknarinn Pär Andersson í samtali við SVT. Í frétt SVT segir að atburðarásin hafi verið nokkurn veginn á þá leið sem saksóknarinn lýsti, en dómurinn taldi það ekki vera næga ástæðu til að dæma konuna í gæsluvarðhald. Saksóknari segist sannfærður um að konan myndi hafa áhrif á sönnunargögn yrði henni sleppt. Lögmaður konunnar, Thomas Ljungdahl, segir niðurstöðu dómsins ekki hafa komið á óvart. „Þetta er fjölskylda sem lifir á óvenjulegan máta en engin brot hafa verið framin.“ Dómarinn Ulf Ahlström segir konuna enn liggja undir grun vegna þeirra ásakana sem fram hafa komið. Réttað var fyrir luktum dyrum og að sögn sat konan róleg í grænni treyju ásamt lögmanni sínum. Dæturnar voru ekki viðstaddar, en mikill fjöldi fjölmiðlamanna safnaðist saman fyrir utan dómssalinn. Konan var handtekin aðfaranótt fimmtudagsins, eftir að lögregla réðst inn á heimili hennar í Bromölla á Skáni. Hún á að hafa búið á nokkrum stöðum í Svíþjóð þar sem hún kom í veg fyrir að börnin yfirgæfu heimilið. Konan var þó ekki skráð til heimilis í íbúðinni í Bromölla – ekki frekar en dætur hennar þrjár sem eru nú 23, 24 og 32 ára gamlar.
Tengdar fréttir Móðir hélt þremur börnum föngnum í yfir tíu ár í smábæ í Svíþjóð Þriggja barna móðir hefur verið handtekin í bænum Bromölla á Skáni í Svíþjóð grunuð um að hafa haldið börnum sínum föngnum í yfir tíu ár. Faðir tveggja barnanna hefur ekki séð börnin sín síðan 1998. 19. febrúar 2015 13:31 Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira
Móðir hélt þremur börnum föngnum í yfir tíu ár í smábæ í Svíþjóð Þriggja barna móðir hefur verið handtekin í bænum Bromölla á Skáni í Svíþjóð grunuð um að hafa haldið börnum sínum föngnum í yfir tíu ár. Faðir tveggja barnanna hefur ekki séð börnin sín síðan 1998. 19. febrúar 2015 13:31