Níræður Mugabe tekur við forystu í Afríkusambandinu Atli Ísleifsson skrifar 30. janúar 2015 23:30 54 Afríkuríki eiga aðild að Afríkusambandinu sem var stofnað árið 2002. Vísir/AP
Leiðtogar Afríkuríkja skipuðu í dag Robert Mugabe, forseta Simbabve, í embætti forseta Afríkusambandsins.Hinn níræði Mugabe hefur stjórnað landi sínu frá árinu 1980 og tekur við forsetaembættinu í Afríkusambandinu af Mohamed Ould Abdel Aziz, forseta Máritaníu. 54 Afríkuríki eiga aðild að Afríkusambandinu sem var stofnað árið 2002 á grunni Einingarsamtaka Afríku. Markmið er að efla efnahaglegt og pólitískt samstarf á milli Afríkuríkja og að vinna að friði, öryggi og þróun í álfunni. Tilkynnt var um skipunina á tveggja daga leiðtogafundi sambandsins í höfuðstöðvum þess í Addis Abeba, höfuðborg Eþíópíu. Forsetinn hlaut mikið lófatak fundarmanna þegar hann fordæmdi nýlendustefnu. „Í forsetatíð minni hyggst ég vísvitandi ögra ykkur til að huga að innviðum, virðisauka, landbúnaði og loftslagsbreytingum,“ sagði Mugabe. Margir hafa gagnrýnt skipun Mugabe, enda fjarri því að vera óumdeildur stjórnmálamaður. „Í sannleika sagt trúi ég ekki öðru en að upphefð hans sé annað en táknræn,“ sagði Piers Pigou, verkefnisstjóri hjá suður-afrískri stofnun sem sérhæfir sig í átakafræðum (International Crisis Group), í samtali við AP. „Skipun hans sendir neikvæð skilaboð um afríska einingu um leiðtoga sem hafa misnotað völd sín.“ Um þrettán milljónir mana búa í Simbabve en efnahagur landsins hefur verið í molum síðastliðin ár og verðbólga himinhá. Mannréttindasamtök hafa mörg gagnrýnt Mugabe og sakað hann um að hafa beitt ofbeldi til að tryggja sér sigur í kosningum landsins.
Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni taka yfir Krít Innlent Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Innlent Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Erlent Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Erlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Erlent Fleiri fréttir Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Sjá meira