Stefnir í sigur stjórnarflokksins í Eistlandi Atli Ísleifsson skrifar 1. mars 2015 21:36 Taavi Roivas er 35 ára gamall og yngsti leiðtogi allra aðildarríkja ESB. Vísir/AFP
Fyrstu tölur benda til þess að Umbótaflokkurinn, hægriflokkur Taavi Roivas forsætisráðherra, hafi unnið sigur í þingkosningum í Eistlandi sem fram fóru í dag. Í frétt Reuters segir að ótti fólks við að stjórnvöld í Rússlandi fari að skipta sér af innanríkismálum Eistlands hafi einkennt kosningabaráttuna að þessu sinni. Er það afleiðing þess að Rússar innlimuðu Krímskaga á síðasta ári. Fylgi flokks Roivas mælist 29,2 prósent, nú þegar tveir þriðjuhlutar atkvæðanna hafa verið taldir. Flokkurinn sigraði kosningarnar 2011 þegar hann hlaut 28,6 prósent atkvæða. Helsti stjórnarandstöðuflokkurinn, Miðflokkurinn, er annar stærsti flokkur landsins, en samkvæmt nýjustu tölum hlýtur hann 21 prósent atkvæða, samanborið við 23,3 prósent árið 2011. Miðflokkurinn er hlynntur nánari tengslum Eistlands og Rússlands. Tölur úr nokkrum af helstu vígjum Miðflokksins hafa enn ekki borist, svo búast má við að atkvæðahlutfall flokksins muni eitthvað hækka þegar líður á talningu. Roivas þykir líklegastur til að leiða áfram ríkisstjórn, jafnvel þó að Miðflokkurinn muni á endanum mælast stærstur flokka. Aðrir flokkar hafa útilokað stjórnarþátttöku með Miðflokknum. Roivas er 35 ára gamall og yngsti leiðtogi allra aðildarríkja ESB. 1,3 milljón manna búa í Eistlandi og tala um fjórðungur íbúa með rússnesku að móðurmáli.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fleiri fréttir Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Sjá meira