Sex milljónir hlýða á páfa í úrhellisrigningu 19. janúar 2015 05:00 Frans Páfi baðar sig í mannfjöldanum á Filippseyjum. Vísir/AP
Sex milljónir manna létu úrhellisrigningu ekki stöðva sig þegar Frans páfi mætti til að ávarpa mannfjöldann í Maníla, höfuðborg Filippseyja. Federico Lombardi, talsmaður Páfagarðs, segir að yfirvöld á Filippseyjum hafi staðfest þessa tölu og jafnframt að þarna hafi verið met slegið. Þegar Jóhannes Páll páfi II. flutti messu á sama stað árið 1995 hafi áheyrendafjöldinn verið fimm milljónir, og þótti mikið. Frans páfi helgaði heimsókn sína hinum fátæku og féll boðskapur hans í góðan jarðveg hjá fólki á Filippseyjum þar sem fátækt er víða mikil. „Hann ann fátækum og fólki eins og okkur,“ sagði Emmie Toreras, 38 ára kona sem hafði brugðið plastpoka yfir sig til að verjast rigningunni. Hún sagðist hafa sofið í almenningsgarðinum þar sem páfi ávarpaði mannfjöldann frá því á föstudag til að tryggja að hún kæmist örugglega að. „Það var blessun að við sáum hann. Þótt við séum gegnblaut í rigningunni þá líður okkur vel.“ Frans hefur verið á ferðinni um Asíulönd í eina viku. Hann kom fyrst við á Srí Lanka á mánudaginn var og lauk ferðinni á Filippseyjum í gær.
Mest lesið Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Beint streymi frá Gleðigöngunni Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Endaði út af eftir framúrakstur Innlent Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Innlent Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Erlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Fleiri fréttir Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Sjá meira