Eitt skot og mark hjá Aroni og Altidore í Árósum Tómas Þór Þóraðrson skrifar 26. mars 2015 10:30 Aron Jóhannsson þurfti aðeins eitt skot til að skora. vísir/epa
Aron Jóhannsson skoraði annað mark Bandaríkjanna í 3-2 tapi fyrir Danmörku í vináttuleik í gærkvöldi sem fram fór á hans gamla heimavelli í Árósum. Aron var að spila sinn fyrsta landsleik síðan hann kom inn á sem varamaður í fyrri hálfleik gegn Gana í fyrsta leik Bandaríkjanna á HM í fyrra. Markið skoraði Aron á 66. mínútu og kom Bandaríkjunum í 2-1, en félagi hans í framlínunni, Jozy Altidore, kom Bandaríkjunum í 1-0 áður en Nicklas Bendtner jafnaði metin. Bendtner skoraði þrennu og innsiglaði sigur Dana.Skotkort Bandaríkjanna í gær.mynd/mlssoccer.comAron og Altidore skutu báðir aðeins einu sinni að marki og skoruðu báðir. Hundrað prósent nýting hjá framherjunum. Aron spilaði 67 mínútur í leiknum en Altidore, sem er kominn aftur í MLS-deildina eftir skelfilega daga hjá Sunderland í ensku úrvalsdeildinni, spilaði allan leikinn. Enginn annar framherji eða miðjumaður Bandaríkjanna sem tók þátt í leiknum kom skoti að marki. Varnarmaðurinn John Brooks skaut tvisvar að markinu en hitti það í hvorugt skiptið. Sóknarleikur bandaríska liðsins hefur verið gagnrýndur undanfarin misseri en fjölmiðlar vestanhafs skrifuðu um það í gær að Altidore og Aron hafi náð vel saman. Nicklas Bendtner skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum sem voru einu fjögur skot Dana á markið. Nick Rimando stóð vaktina í marki Bandaríkjanna í fjarveru Tims Howards, markvarðar Everton, sem er í fríi frá landsliðinu. Hér að neðan má sjá mörkin sem Altidore og Aron skoruðu í gær úr einu skotum Bandaríkjanna á mark Dana. Heildartölfræði leiksins má finna hér.Altidore 0-1: Aron Jóhannsson 1-2:
Fótbolti Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Fleiri fréttir Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Sjá meira