Sumarbúðir í Útey hafnar: „Við erum komin heim“ Atli ísleifsson skrifar 7. ágúst 2015 11:25 Rúmlega þúsund þátttakendur eru skráðir til leik í sumarbúðunum og hafa aldrei verið fleiri. Vísir/AFP
Sumarbúðir ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins hófust í Útey í morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem búðirnar eru haldnar frá hryðjuverkaárásinni í eynni og í Ósló þann 22. júlí 2011. Það var þungskýjað þegar Mani Hussani, formaður ungliðahreyfingarinnar, ávarpaði rúmlega þúsund þátttakendur í morgun, en aldrei hafa fleiri verið skráðir í búðirnar. „Við erum komin heim,“ sagði Hussaini. 69 manns voru drepnir í árásinni í Útey fyrir fjórum árum síðan og eru margir sem sækja búðirnar nú sem gerðu það einnig á deginum örlagaríka 2011.69 stöplar Dagskrá búðanna eru á margan hátt svipuð fyrri ára þar sem knattspyrnu- og blakleikir ólíkra héraðssambanda hófust til að mynda í morgun. Í byggingunni þar sem fjölmargir voru skotnir til bana geta þátttakendur nú fræst um árásina þar sem 69 stöplar tákna öll fórnarlömb árásarinnar. Einnig er búið að koma upp sérstökum minnisvarða og þremur nýjum byggingum þar sem ólík málþing fara fram.Gro Harlem Brundtland mætir Þegar Hussaini ávarpaði gesti varði hann ekki miklum tíma í að ræða um árásina 2011 heldur lagði mesta áherslu á pólitíska merkingu sumarbúðanna. Besti hann á að fjölmargar hugmyndir sem upp hafa komið á málþingum í eyjunni hafi síðar orðið að lögum á norska þinginu. Fyrrum forsætisráðherrann Gro Harlem Brundtland mun einnig sækja búðirnar heim en hún var stödd í Útey einungis nokkrum klukkustundum áður en árásarmaðurinn lét til skarar skríða 2011. Að sögn árásarmannsins hugðist hann meðal annars ráða Brundtland af dögum.Mani Hussaini.Vísir/AFPVísir/AFPVísir/AFPJens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO og fyrrverandi forsætisráðherra Noregs.Vísir/AFPVísir/AFP
Mest lesið Eldur í Elliðaárdal Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Fleiri fréttir Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Sjá meira