Fékk sendan fingurinn eftir að ekið var utan í hann Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. september 2015 10:48 Ökumaðurinn ók af vettvangi og sendi manninum skilaboð með fingrabendingum. Vísir/Páll
Þrjú rifbein brotnuðu hjá starfsmanni við vegavinnu á Helliðsheiði á föstudagsmorgun eftir að ekið var utan í hann. Ökumaðurinn ók af vettvangi og sendi manninum skilaboð með fingrabendingum. Starfsmaðurinn er einnig með marinn kviðvegg og sært milta að því er betri helmingur hans greinir frá á Facebook. Unnið er að tvöföldun vegarins á Hellisheiði þar sem starfsmaðurinn hefur verið við vinnu undanfarnar vikur. „Ég er svo reið, sorry, svekkt og sár,“ segir kona mannsins í færslu á Facebook sem á sjöunda hundrað manns hafa deilt. Hún óttast greinilega um mann sinn og segir vinnu hans stórhættulega. Maðurinn lauk vinnudegi en kenndi sér meins síðar um daginn. Var málið í kjölfarið tilkynnt til lögreglu.Lögegla leitar hvíts jepplings „Ökumaðurinn var greinilega ekki að fýla að þarna væru menn við vinnu og hann hafi þurft að hægja á sér og hinkra stutta stund meðan trailer fullur af jarðvegsefni sturtaði á götuna,“ upplýsir hún. Maður hennar hafi farið úr gröfunni til að leiðbeina samstarfsmanni og stýra umferðinni. Tveir bílar hafi hlýtt athugasemdum og numið staðar en ökumaður þriðja bílsins gefið í og stefnt beint á manninn hennar. Hann hafi náð að forða sér en bíllinn þó strokist við hann með fyrrnefndum afleiðingum. Ökumaður bílsins, hvíts jepplings sem líklega er af gerðinni Honda CRV, sendi honum svo fingurinn og hélt áfram för sinni að sögn konunnar. Lögregla rannsakar málið sem slys og biður um að ökumaðurinn gefi sig fram svo hinn slasaði fái bætur frá réttu tryggingafélagi.
Tengdar fréttir Ók á starfsmann við vegavinnu og nam ekki staðar Lögregla á Suðurlandi leitar ökumanns hvíts jepplings sem ók á mann á Hellisheiðinni á föstudag. 20. september 2015 16:54 Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira
Ók á starfsmann við vegavinnu og nam ekki staðar Lögregla á Suðurlandi leitar ökumanns hvíts jepplings sem ók á mann á Hellisheiðinni á föstudag. 20. september 2015 16:54