Alfreð fékk ekki að spila fjórða leikinn í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2015 19:31 Alfreð Finnbogason. Vísir/Getty
Það breytist ekki mikið í gríska fótboltanum þessa dagana, Olympiakos vinnur alla leiki og íslenski landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason þarf að dúsa allar 90 mínúturnar á varamannabekknum. Alfreð Finnbogason kom ekkert við sögu í kvöld þegar Olympiakos vann 3-1 útisigur á Skoda Xanthi í grísku úrvalsdeildinni. Olympiakos hefur þar með fullt hús, 12 stig, eftir fyrstu fjórar umferðirnar. Alfreð byrjaði inná í 3-0 sigri á Panionios Athens í 1. umferð en hefur síðan ekki fengið að spila eina einustu mínútu. Alfreð var ekki í hópnum í 2. umferð en hefur síðan verið á bekknum í síðustu þremur leikjum, einum í Meistaradeildinni og tveimur í grísku deildinni. Kostas Fortounis skoraði tvö síðustu mörk Olympiakos í leiknum í kvöld en mörkin komu með þriggja mínútna kafla eftir að leikmenn Skoda Xanthi höfðu jafnað metin í 1-1. Jimmy Durmaz kom Olympiakos í 1-0 á 42. mínútu en Nikolay Dimitrov jafnaði metin á 49. mínútu. Nígeríumaðurinn Brown Ideye lék allan leikinn sem fremsti maður hjá Olympiakos en tveimur miðjumönnum og einum varnarmanni var skipt útaf í leiknum í kvöld. Olympiakos var fyrsta liðið til að skora hjá Skoda Xanthi liðinu á tímabilinu en auk þess að vera með 12 stig af 12 mögulegum þá er liðið með markatöluna 11-2.
Fótbolti Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Chelsea - Brighton | Welbeck fær gamla félagið í heimsókn Enski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ísak Snær tryggði sínu liði sigur Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Chelsea - Brighton | Welbeck fær gamla félagið í heimsókn Valur - FH | Verður Evrópuþynnka hjá FH? Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Messi skoraði fjögur í stórsigri Inter Miami Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Orri hetjan í fyrsta sigrinum Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Martröð Alberts og félaga í upphafi leiktíðar Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ „Allt liðið sem og félagið í heild stigið upp“ Campbell skoraði í góðum sigri nýliðanna Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Sjá meira