Vigdís ítrekað sögð fara með rangt mál Jakob Bjarnar skrifar 28. september 2015 13:41 Vigdís hlær að þessum ásökunum, þess efnis að hún fari ítrekað með fleipur. visir/pjetur
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður fjárlaganefndar, telst til einskonar methafa á hinum pólitíska akri þá hvað varðar að vera sökuð um að fara með rangt mál. Ef marka má einfalda leit á Google þá virðist sem hún sé einskonar Munchhausen hinna íslensku stjórnmála. Sé slegið inn í leitargluggann „Vigdís „rangt mál““ þá koma upp 11.100 niðurstöður. Vissulega tekur leitin til fleiri atriða en þeirra að um sé að ræða Vigdísi sem fer með „rangt mál“, en þau eru hins vegar mýmörg. Nýjasta dæmið um það er frá í gær þegar Vigdís er sögð fara með rangt mál er frétt RÚV af ummælum Vigdísar um Isavia, að fyrirtækið skuli boða lokun flugvalla, því hún telur að stofnunin hafi ekki nýtt það fjármagn sem hún fékk til viðhalds flugvalla á landbyggðinni á þessu rekstrarári. Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia, segir Vigdísi fara með rangt mál. Þylja mætti upp fjölmörg dæmi af sama toga og hafa velflestir fjölmiðlar birt af því fréttir þar sem Vigdís er sögð fara með „rangt mál“. Vigdís segist, í stuttu samtali við Vísi, ekki vera að stressa sig á þessu: „Nei, ég hlæ. Enda veit ég betur,“ segir Vigdís.En, hvernig má þetta vera? Fer hún ítrekað með fleipur eða eru menn að rýna í málflutning hennar, líkt og þeir séu með hana á heilanum, í leit að götum? „Þetta er gamla trixið sem notað er af karlmönnum í valdastöðum á konur sem eru í stjórnmálum – ég hef gaman að þessu þar sem enginn af þessum mönnum hefur þorað að mæta mér í efnislegri umræðu,“ segir Vigdís Hauksdóttir: „Aumt yfirklór og verið að beina sjónum í aðra átt en að því efnislega innihaldi og brotalömum í kerfinu sem ég er sífellt að benda á sem varðmaður skattgreiðenda í landinu.“
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira