Töluvert um veikindi á vinnustöðum landsins sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 29. september 2015 13:45 Helst eru það öndunarfærapestir sem nú eru að hrjá landann. vísir/vilhelm
Töluvert hefur verið um veikindi á vinnustöðum og í skólum landsins undanfarnar vikur. Helst eru það öndunarfærapestir sem nú eru að hrjá landann, sem þó er ekki óalgengt á þessum árstíma, að sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. „Þetta byrjar alltaf á haustin; öndunarfæra- og niðurgangspestir. Til dæmis þegar börnin fara í leikskóla og skóla aftur þá fer þetta af stað og það er það sem við erum að sjá núna. Núna eru það aðallega öndunarfærasýkingar í gangi. Þetta er í raun alltaf sama sagan á þessum tíma og þegar fer að líða á veturinn þá koma aðrar sýkingar eins og inflúensa og annað,“ segir Þórólfur.Hvetur fólk til að halda sig heima Hann segir helstu einkennin slappleika, nefstíflu, hita og hósta. „Síðan er það hæsi og barkabólgur, en það er auðvitað einstaklingsbundið hvernig einkenni fólk fær.“ Þórólfur segir veikindin ganga yfir á um það bil viku hjá fullorðnum, en að hjá börnum geti það tekið lengri tíma, eða allt að þrjár vikur. „Það er best fyrir þá sem eru veikir að halda sig heima, taka því rólega og leyfa þessum veikindum að ganga yfir. Þessar veirusýkingar ganga yfirleitt yfir að sjálfu sér. En ef fólk líður mjög illa, er óvenju þjakað eða veikindin dragast á langin þá hvet ég það til að leita til læknis, því það getur fengið í lungun. Þá geta jafnframt komið upp eyrnabólgur hjá börnum,“ segir hann.
Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Fleiri fréttir Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Sjá meira