Innlent

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga hjá ríkinu skorar á fjármálaráðherra

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Bjarni Benediktsson er fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson er fjármálaráðherra. Vísir/Vilhelm
Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga er starfa hjá ríkinu samþykkti á fjölmennum fundi ályktun þar sem þess er krafist að ríkið gangi tafarlaust til samninga við félagið. Kjarasamningar félagsins við ríkið hafa verið lausir í um hálft ár.

Í ályktuninni segir að afturvirkar launabreytingar hafi þegar tekið gildi hjá þeim háskólamönnum sem heyri undir Gerðardóm og vinni í mörgum tilfellum sambærileg störf og félagsmenn KVH hjá ríkinu. Fyrir liggja bæði ítarlegar tillögur KVH og niðurstaða Gerðardóms, sem kvað upp úrskurð sinn 14. ágúst s.l. um laun og forsendur launabreytinga mikils fjölda háskólamanna sem starfar hjá ríkinu.

Hingað til hafa hugmyndir samninganefndar ríkisins um launahækkanir verið með öllu óviðunandi fyrir þá 500 félagsmenn KVH sem sinna mikilvægum störfum á ríkisstofnunum og í engu sambærilegar við niðurstöðu Gerðardóms eða þær forsendur sem löggjafinn setti honum. 

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga skorar á fjármálaráðherra að beita sér fyrir lausn mála svo ekki þurfi að koma til ófriðar að nýju á opinberum vinnumarkaði.


Tengdar fréttir

„Hendur okkar eru bundnar í bak og fyrir“

Formaður Landssambands lögreglumanna segir að félagsmenn sínir væru að öllum líkindum á leið í verkfallsaðgerðir hefðu þeir verkfallsrétt. Boðað er til baráttufundar í Háskólabíói á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×