Bæjarstjórinn heyrði um förgun geislavirkra efna í fréttum Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar 17. september 2015 20:56
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, heyrði fyrst í fréttum að geislavirk efni hefðu fallið til við orkuvinnslu í Reykjanesvirkjun og þeim hefði verið fargað á svæðinu. Hann segir það óheppilegt en hann hafi þó fengið þær skýringar að engin hætta sé á ferðum. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja ætlar að setja sig í samband við Geislavarnir ríkisins og skoða málið enda haga íbúar lýst áhyggjum af vatnsbólinu á svæðinu.Lítil hætta á geislun Efnin sem fundust eru pólóníum og geislavirkt blý, þau eiga ekki að vera til staðar nema móðurefnin radium og radon séu til staðar, þau geta hinsvegar verið mjög djúpt í iðrum jarðar. Í tilkynningu frá Geislavörnum segir að þessi efni gefi frá sér beta- eða alfa geislun sem sé skammdræg. Geislunin er það skammdræg að fólk verður ekki fyrir geislun frá útfellingunum þó það standi mjög nálægt þeim en ef fólk innbyrðir þessi efni valda þau innvortis geislun. Í tilkynningunni segir að það sé þó mat Geislavarna ríkisins að geislun frá þessum útfellingum sé svo lítil að fólki stafi ekki hætta af.Starfsmenn sallarólegir Þorgeir Sigurðsson verkfræðingur hjá Geislavörnum ríkisins sagði við RÚV í gær að að Geislavarnir hefðu mátt skýra fyrr frá málinu og hraða hefði mátt rannsóknum. Skammt frá urðunarstaðnum er hausaverkun og í um kílómetra fjarlægð er fiskeldisstöð. Ásgeir segir að þar sé engin hætta á ferðum, þetta séu föst efni sem ekki fjúki um eða blandist andrúmsloftinu. Ásgeir Margeirsson forstjóri HS Orku segir að engin hætta sé á ferðum, efnin séu hættulaus nema þeim sé andað að sér eða neytt í einhverju magni. Hann hitti starfsmenn á fundi í Reykjanesvirkjun í morgun og sagði þá sallarólega vegna málsins enda væri fyllsta öryggis gætt við förgun allra jarðefna, þar væru men jafnan í hlífðargalla með hanska. Efnið var urðað með öðrum jarðefnaúrgangi þar til geislavirknin kom í ljós, þá er þeim fargað í lokuðum ílátum.
Tengdar fréttir Vart við geislavirkni á Íslandi í fyrsta sinn Geislavarnir ríkisins segja enga hættu á ferðum. 16. september 2015 18:08 Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Sjá meira
Vart við geislavirkni á Íslandi í fyrsta sinn Geislavarnir ríkisins segja enga hættu á ferðum. 16. september 2015 18:08