Leit ekki út fyrir í upphafi að skartgriparánið yrði upplýst Gissur Sigurðsson skrifar 4. september 2015 12:07
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst innbrot í skartgripaverslun í verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði í byrjun síðasta mánaðar. Karlmaður á fertugsaldri viðurkenndi verknaðinn í gær við yfirheyrslur hjá lögreglunni. Um svipað leyti voru gögn farin að berast úr tæknirannsókn lögreglunnar, sem áttu þátt í að knýja fram játninguna. Um er að ræða sama mann og handtekinn var á fyrstu stigum rannsóknarinnar. Þjófurinn braut sér leið inn í verslunina og hafði með sér úr og skartgripi fyrir tugi milljóna króna. Lögreglan lýsti þá eftir þjófnum með myndum úr eftirlitsmyndavél. Ennþá eiga eftir að berast gögn úr tæknirannsókn lögreglunnar og eftirgrennslan lögreglunnar erlendis. Málið telst þó upplýst. Bjarni Ólafur Magnússon, lögreglufulltrúi í Hafnarfirði, segir málið hafa verið afar umfangsmikið og að ekki hafi verið útlit fyrir það við upphaf rannsóknar að takast myndi að upplýsa það. Verðmæti þess sem stolið var hleypur á milljónum króna, en unnið er að því að endurheimta hina stolnu muni. Talið er að hluti þeirra hafi verið fluttur úr landi. Bjarni Ólafur segir ekki tímabært að tjá sig um hvort málið sé talið tengjast skipulagðri glæpastarfsemi né hvort málið teygi anga sína út fyrir landsteinana. Hann segir málið hafa verið rannsakað eitt og sér og að nú sé það upplýst.
Tengdar fréttir Hafði með sér skart fyrir tugi milljóna Þjófur lét greipar sópa í skartgripaverslun í Firðinum í Hafnarfirði og tók allt gull, flest allt silfur og alla demanta verslunarinnar auk fjölda annarra dýrmætra gripa. 3. ágúst 2015 21:24 Mannleg mistök að ekki var kveikt á öryggiskerfinu “Þjófurinn virðist þekkja vel til verka,“ segir framkvæmdastjóri Fjarðarins. 5. ágúst 2015 19:30 Öryggiskerfið var tekið af Firðinum klukkustund fyrir ránið Enginn hefur verið handtekinn vegna ránsins í skartgripaverslunina Úr og gull. Framkvæmdastjóri Fjarðarins segir augljóst að um fagþjóf sé að ræða sem hafi þekkt vel til í Firðinum. 4. ágúst 2015 11:39 Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Fleiri fréttir Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Sjá meira
Hafði með sér skart fyrir tugi milljóna Þjófur lét greipar sópa í skartgripaverslun í Firðinum í Hafnarfirði og tók allt gull, flest allt silfur og alla demanta verslunarinnar auk fjölda annarra dýrmætra gripa. 3. ágúst 2015 21:24
Mannleg mistök að ekki var kveikt á öryggiskerfinu “Þjófurinn virðist þekkja vel til verka,“ segir framkvæmdastjóri Fjarðarins. 5. ágúst 2015 19:30
Öryggiskerfið var tekið af Firðinum klukkustund fyrir ránið Enginn hefur verið handtekinn vegna ránsins í skartgripaverslunina Úr og gull. Framkvæmdastjóri Fjarðarins segir augljóst að um fagþjóf sé að ræða sem hafi þekkt vel til í Firðinum. 4. ágúst 2015 11:39