Þjófur með samviskubit skilaði peningum til skólans Atli Ísleifsson skrifar 14. ágúst 2015 10:44 Í bréfinu segist nemandinn vona að forsvarsmenn skólans geti fyrirgefið sér. Mynd/Finn Lea/Tastaveden skole
Fyrrum nemandi við grunnskóla í Stafangri var með slæma samvisku eftir að hafa stolið peningum úr kaffistofu skólans á sínum yngri árum. Því ákvað hann að senda bréf til skólans þar sem hann skilar þýfinu, með vöxtum. Bréfið beið starfsmanna skólans þegar þeir sneru aftur úr sumarfríi fyrr í vikunni. Með bréfinu fylgdu tveir norskir 500 krónu seðlar. „Hæ. Þegar ég var yngri var ég í Tastaveden-skólanum. Ég og vinur minn stálum peningum frá kaffistofunni þegar við unnum þar. Ég stal 600-800 krónum. Hérna er þúsundkall. Ég er með slæma samvisku núna. Vona að þið getið fyrirgefið mér,“ segir í brétinu. Skólastjórinn Finn Lea segir í samtali við Aftenbladet að bréfið hafi hreyft við sér og hrósar hann drengnum fyrir að gera málið upp. „Þetta segir ýmislegt um ungmennin í dag.“ Lea segir lítið mál að fyrirgefa drengnum, en hann segist ekki vita hver hafi sent bréfið eða þá að stolið hafi verið úr sjóði kaffistofunnar. Lea segir að krónurnar sem bárust í pósti, sem samsvara um 16 þúsund íslenskum krónum, verði lagðar í sjóð nemendafélags skólans.
Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Fleiri fréttir Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Sjá meira