Þúsundir íbúa hafa misst heimili sín Guðsteinn Bjarnason skrifar 18. ágúst 2015 07:00 Gríðarmikil hola myndaðist þar sem sprengingarnar urðu í vörugeymslu á hafnarsvæðinu í Tianjin á miðvikudag. Vísir/epa
Tala látinna eftir sprengingarnar í Tianjin á miðvikudag var í gær komin upp í 114. Sjötíu manns að auki var enn saknað og nærri 60 manns liggja alvarlega slasaðir á sjúkrahúsum. Um það bil 17 þúsund íbúðir eyðilögðust í sprengingunum, með þeim afleiðingum að sex þúsund manns hið minnsta hafa misst heimili sitt. Hópar fólks hafa komið saman í miðborginni til að krefjast skaðabóta. Fólkið vísar til þess að eldfim og stórhættuleg efni hafi verið geymd við höfnina með ólöglegum hætti, bæði í allt of miklu magni og allt of nálægt íbúðarhúsum. Stjórnvöld hafa staðfest að 700 tonn af natríumblásýrusalti hafi verið geymd á hafnarsvæðinu, þar sem sprengingarnar urðu. Þetta er miklu meira magn en heimilt var að geyma þarna. Efnið er baneitrað og gefur frá sér blásýru ef það brennur eða leysist upp í vatni.Náðu í eigur sínar Íbúar á hættusvæði í Tianjin hafa fengið að fara í fylgd með hermönnum heim til sín til að ná í eigur sínar. Fréttablaðið/EPAEfnið hefur greinst í hættulegu magni í afrennslisvatni. Mælingarnar vekja ótta, en borgaryfirvöld sögðust í gær ætla að safna saman og eyða strax fyrir kvöldið öllu natríumblásýrusalti sem fyndist á svæðinu í allt að þriggja kílómetra fjarlægð frá sprengistaðnum. Borgaryfirvöld hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að hafa heimilað geymslu á þetta miklu magni af baneitruðu efni í næsta nágrenni við íbúðahverfi. Aldrei þessu vant hafa stjórnvöld leyft gagnrýnisröddum að heyrast opinberlega. Að minnsta kosti upp að vissu marki. Tianjin er fimmtán milljóna manna stórborg og hafnarsvæðið þar hefur mikið vægi í efnahagslífi landsins. Þangað koma til dæmis um 40 prósent af öllum þeim bifreiðum, sem fluttar eru inn til Kína.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira