Perúski herinn bjargaði 39 manns úr höndum uppreisnarhóps Atli Ísleifsson skrifar 28. júlí 2015 23:30 Fjórar herþyrlur voru notaðar til að flytja gíslana á brott. Vísir/AFP
Perúski herinn hefur bjargað 39 manns frá búgarði þar sem liðsmenn uppreisnarhópsins Ljómandi vegur (Sendero Luminoso) hefur haldið þeim í þrældómi.Í frétt BBC kemur fram að sumir gíslanna segja að þeim hafi verið rænt fyrir um þrjátíu árum síðan. Talsmaður perúska varnarmálaráðuneytisins segir að 26 hinna 39 séu börn og hafi mörg þeirra fæðst á búgarðinum. Um 120 perúskir hermenn tóku þátt í aðgerðinni, en fyrrum liðsmenn uppreisnarhópsins komu hermönnum á snoðir um búgarðinn.Fjórar herþyrlur Fjórar herþyrlur voru notaðar til að flytja gíslana á brott. „Við höfum verið hér, svona, í þrjátíu ár,“ sagði einn gíslanna í samtali við dagblaðið La Republica. Sum börnin sem haldið var föngnum voru að sögn hrædd við hermennina eftir að uppreisnarmennirnir höfðu sagt hermennina ætla að drepa þau.Konum gert að fjölga sér Aðstoðarvarnarmálaráðherrann Ivan Vega Loncharich segir að búgarðurinn hafi verið þannig starfræktur að börnunum var gert að vinna í landbúnaði og konum gert að fjölga sér til að fjölda þannig í hópi uppreisnarhópsins. Ljómandi vegur er uppreisnarhópur sem leitar innblásturs til maóista og lognaðist að mestu út af á tíunda áratugnum eftir að hafa staðið fyrir skæruhernaði um árabil. Um 70 þúsund manns létust eða hurfu eftir rúmlega áratugalangar deilur hópsins og perúskra yfirvalda. Yfirvöld hafa sakað liðsmenn hópsins um framleiðslu og ólöglega sölu á kókaíní.
Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Innlent „Þetta er ekkert grín“ Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið Innlent Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent Fleiri fréttir Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Sjá meira