Innlent

Boðið verður upp á sérstaka tunnu fyrir plast á árinu

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Sorphirðumenn að störfum.
Sorphirðumenn að störfum. vísir/heiða
Sérstök tunna undir plast mun standa heimilum í Reykjavík til boða síðar á árinu. Í kvöld verður fundur á Kjarvalsstöðum til að kynna málið frekar en fundurinn verður í beinni útsendingu á vefnum.

Kannanir sýna að borgarbúar er duglegir að flokka til endurvinnslu og vilja flokka enn meira. Reykjavíkurborg vill koma til móts við þessar óskir og mun heimilum fljótlega standa til boða sérstök tunna undir plastsöfnun. Hún verður græn á litinn og losuð á 28 daga fresti. Plastsöfnun við heimili er á starfsáætlun umhverfis- og skipulagssviðs 2015.

20% efnis í blönduðum úrgangi er plast um þessar mundir og því var 4000 tonnum af plasti urðað í Álsnesi á síðasta ári. Kannanir sýna að borgarbúar vilja meiri þjónustu í úrgangsmálum við heimilin og þar eru konur áhugasamari en karlar því 59% kvenna vilja bæta við flokkunartunnu en 45% karla. 80% borgarbúa búa í fjölbýli og geta sameinast um tunnur undir plast.

„Neysluhættir hvetja til sóunar í umbúðasamfélagi en hver og einn getur haft áhrif á myndun úrgangs með hegðun sinni og vali á vörum,“ segir Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri umhverfis- og úrgangsstjórnunar hjá Reykjavíkurborg. „Það þarfa að vera auðvelt og ódýrt að vera umhverfisvænn, flokkun á plasti við heimili styður vistvænan lífsstíl.“

Úrgangsforvarnir eða að draga úr myndun úrgangs eru kjarninn í nýrri aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar um framtíð úrgangsmála. Kynningarfundur verður haldinn í kvöld á Kjarvalsstöðum kl. 20.00 þar sem borgarbúum gefst einnig kostur á að koma með athugasemdir og ábendingar. Tillögur að 42 aðgerðum verða aðgengilegar á fundinum og opnað fyrir umræðu og ábendingar.

Hægt verður að horfa á fundinn með því að smella hér.


Tengdar fréttir

Sorphirðumenn gerðu ekkert rangt

Rannsókn lögreglu hefur leitt í ljós að ekki var um innbrotstilraun að ræða í hús Heiðars Helgusonar í höfuðborginni í gær.

Keppast við að tæma tunnur

Sorphirða Reykjavíkurborgar segist keppast við í þeim hverfum sem ekki náðist að klára fyrir jól. Færð sé víða þung vegna hálku og klaka.

Rannsaka samkeppnisbrot vegna blátunna

Gámaþjónustan kvartaði undan framkvæmd innleiðingar sveitarfélaganna og Sorpu á endurvinnslutunnum fyrir pappír og pappa, svokölluðum blátunnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×