Innlent

Áprentaðri mynd ætlað að draga úr sjónmengun við Fríkirkjuveg

Bjarki Ármannsson skrifar
Framkvæmdir standa nú yfir á einu elsta og þekktasta einbýlishúsi borgarinnar.
Framkvæmdir standa nú yfir á einu elsta og þekktasta einbýlishúsi borgarinnar. Mynd/Novator
Framkvæmdir standa nú yfir á húsinu við Fríkirkjuveg 11 og hefur dúkur með áprentaðri mynd hússins verið hengdur yfir vinnupalla við þrjár hliðar hússins. Húsið er órjúfanlegur hluti af miðbæjarmynd borgarinnar og ku markimiðið með dúknum vera að draga úr sjónmengun á meðan framkvæmdunum stendur.

Húsið er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar kaupsýslumanns, sem keypti það af Reykjavíkurborg árið 2007. Það var Thor Jensen athafnamaður, langafi Björgólfs Thors, sem lét reisa húsið á árunum 1907 til 1908.

Í fréttatilkynningu vegna framkvæmdanna segir að til standi að hlúa að þeim menningarverðmætum sem felist í byggingunni. Húsið verði gert upp að utan og innan og svo opnað almenningi.

Húsið er að stórum hluta friðað en stefnt er að því að láta ásjónu þess líkjast því sem var þegar húsið var nýbyggt. Verið er að mála húsið á ný með upprunalegum málningarlitum og upprunalegar flísar verða notaðar í anddyri, svo eitthvað sé nefnt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×