Meint svindl stúdentsefna á þýskuprófi: Átta af níu nemendum hafa snúið sér til ráðuneytisins Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. maí 2015 15:59 Menntaskólinn við Sund Vísir/stefán
Átta af þeim níu nemendum Menntaskólans við Sund sem sakaðir eru um að hafa svindlað á stúdentsprófinu í þýsku fyrr í mánuðinum hafa snúið sér til mennta- og menningarmálaráðuneytisins vegna málsins. Samkvæmt heimildum Vísis vilja sumir þeirra meina að alls engin tilraun hafi verið gerð til þess að svindla. Már Vilhjálmsson, skólastjóri MS, þarf að svara erindi frá ráðuneytinu í síðasta lagi á morgun. „Það er ótrúlegur tími sem fer í þetta,“ sagði Már þegar blaðamaður náði af honum tali í eftirmiðdaginn til að forvitnast um stöðu máls. Öllum nemendunum níu voru boðnir tveir kostir sem áttu að gefa þeim færi á að útskrifast í næsta mánuði. Már segir nemendur svo sannarlega eiga rétt á því að leita til ráðuneytisins. Hann þurfi að svara erindi frá ráðuneytinu þar sem óskað er svara við spurningum á morgun. Í kjölfarið muni ráðuneytið taka afstöðu til málanna.Fullyrða að ekkert svindl hafi átt sér stað Hið meinta svindl nemenda fólst að sögn Más í því að gögn voru falin í orðabók sem þeim var heimilt að taka með sér í prófið. Var nemendum vikið úr prófinu, prófgögn gerð upptæk og nemendurnir sendir á fund skólastjóra. Þau fengu sjálfkrafa núll í prófinu. Í kjölfarið var öllum nemendunum sent bréf þar sem þeim buðust tvær leiðir til þess að ljúka námi á þann hátt að ekkert stæði í vegi fyrir því að þau útskrifuðust og gætu hafið háskólanám í haust. Samkvæmt heimildum Vísis fullyrða nokkrir nemendurnir að engin brögð hafi verið í tafli. Til tíðinda heyrir að svo margir nemendur séu staðnir að svindli en Már skólastjóri sagði við Vísi á dögunum að ekki hafi komið upp svindl í útskriftarárgangi síðan árið 2002. Málið er mjög viðkvæmt enda nemendurnir og fjölskyldur þeirra farin að sjá til hafnar. Veislur skipulagðar sem þurfi að blása af enda ljóst að nemendurnir níu munu ekki útskrifast ásamt öðrum í árgangnum við hátíðlega athöfn næstkomandi sunnudag.Uppfært klukkan 17:30 Í fyrri útgáfu fréttarinnar kom fram að átta af níu nemendum hefðu ekki fallist á boð Más skólastjóra. Það mun ekki vera rétt. Reiknað er með því að flestir ef ekki allir nemendurnir þreyti þýskupróf í júní.
Tengdar fréttir Stúdentsefni í MS staðin að svindli: Fá ekki að útskrifast með samnemendum sínum "Það sorglegasta við þetta mál er að flestir þessir nemendur þurftu ekkert á þessu að halda. Þetta eru ágætir námsmenn og ekki eins og þeir hafi þurft að bjarga sér frá falli,“ segir Már Vilhjálmsson, skólastjóri MS. 13. maí 2015 13:00 Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Fleiri fréttir Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Sjá meira
Stúdentsefni í MS staðin að svindli: Fá ekki að útskrifast með samnemendum sínum "Það sorglegasta við þetta mál er að flestir þessir nemendur þurftu ekkert á þessu að halda. Þetta eru ágætir námsmenn og ekki eins og þeir hafi þurft að bjarga sér frá falli,“ segir Már Vilhjálmsson, skólastjóri MS. 13. maí 2015 13:00