Stúdentsefni í MS staðin að svindli: Fá ekki að útskrifast með samnemendum sínum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. maí 2015 13:00 Nemendur máttu mæta með orðabók í umrætt próf. Svindlið fólst hins vegar í því að gögn voru falin í orðabókinni. Vísir/Anton
Níu nemendur í útskriftarárgangi Menntaskólans við Sund voru staðnir að svindli í stúdentsprófi í þýsku á dögunum. Fallist þeir á tilboð skólastjóra mun málið ekki tefja þá í námi. Þeir munu þó ekki taka við skírteinum sínum ásamt samnemendum sínum þegar húfurnar fara á loft um mánaðarmótin. „Það sorglegasta við þetta mál er að flestir þessir nemendur þurftu ekkert á þessu að halda. Þetta eru ágætir námsmenn og ekki eins og þeir hafi þurft að bjarga sér frá falli,“ segir Már Vilhjálmsson, skólastjóri MS í samtali við Vísi. Nemendur máttu mæta með orðabók í umrætt próf. Svindlið fólst hins vegar í því að gögn voru falin í orðabókinni. Var nemendum vikið úr prófinu, prófgögn gerð upptæk og þau send á fund skólastjóra. Þau fá sjálfkrafa núll í prófinu.Ósanngjarnt gagnvart öðrum nemum fengu þau að fagna Már segir að búið sé að úrskurða í málinu og nemendunum hafi öllum verið send bréf. Þar bjóðist þeim tvær leiðir til þess að ljúka námi sínu þannig að svindlið muni ekki hafa áhrif á möguleika þeirra til að hefja háskólanám í haust. Þau fái hins vegar ekki að gleðjast með samnemendum þann 31. maí. Það væri ósanngjarnt að nokkrir nemendur fengu aukatækifæri og gætu svo fagnað með hinum nemendunum eins og ekkert hefði í skorist. Nokkrir nemendur hafa þegar svarað bréfi Más og þekkjast boðið. Hann hafi einnig heyrt af óánægðum nemendum sem hafi sagst hafa ætlað að gera athugasemdir til menntamálaráðuneytisins þar sem þeir séu ekki sáttir við niðurstöðuna í málinu. Már segir það rétt þeirra og verði að fara sína leið. Að sögn Más, sem gegnt hefur stöðu skólastjóra í MS frá árinu 2001, hefur aðeins einu sinni í hans tíð komið upp að útskriftarnemendur voru staðnir að prófsvindli. Þrír nemendur svindluðu í stúdentsprófunum 2002. Síðan þá hafi ekki komið upp svindl hjá útskriftarnemum svíki minnið hann ekki.Prófaeftirlitsfólk stóð nemanna að verki Aðspurður hvernig upp hafi komist um svindlið segir Már nemendurna einfaldlega hafa verið staðna að verki af prófaeftirlitsfólki. Ekki hafi verið skoðaðar allar orðabækur nemenda í kjölfarið. „Það má ekki valda frekari röskun í prófi en nauðsynlegt er,“ segir Már. Almennt sé gengið út frá því að fólk sé heiðarlegt. Talið er að 2-3 nemendur hafi mögulega haft samráð um svindlið en ekkert bendi til annars en að hinir hafi hver um sig tekið ákvörðun um að svindla.Fólk byrjað að plana veislu Síminn hefur ekki stoppað hjá Má undanfarið og eru skiptar skoðanir á ákvörðunum skólayfirvalda. Sumum finnist þau alls ekki nógu ströng á meðan öðrum finnist þau hafa farið yfir strikið gagnvart nemendum. „Sitt sýnist hverjum,“ segir Már sem er vel meðvitaður um hve viðkvæmt málið sé. Fjölskyldur hafi verið byrjaðar að undirbúa veislur og svo hafi þetta áhrif innan skólans líka. Hann vill að svo stöddu ekki útskýra nánar í hverju kostir nemendanna felist en ítrekar að gangi þau að öðrum þeirra ætti ekkert að koma í veg fyrir háskólanám í haust.Mbl. greindi fyrst frá málinu
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Fleiri fréttir Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Sjá meira