Segja að vonarglætan hafi orðið að engu í dag Stefán Árni Pálsson skrifar 18. maí 2015 18:52 Hér mæta Páll Halldórsson og félagar hans í BHM í Félagsdóm. Fréttablaðið/Ernir
Fyrir helgi sendi BHM frá sér fréttatilkynningu þar sem því var lýst yfir að verkfallsaðgerðir yrðu ekki hertar að svo stöddu. Í tilkynningu frá BHM í dag segir að sú ákvörðun hafi verið tekin í trausti þess að á næsta fundi samninganefndar BHM með ríkinu, sem var í dag, yrðu tekin sýnileg skref í átt að lausn deilunnar. „Sú vonarglæta sem vaknaði fyrir um viku síðan að samningaviðræður væru loksins hafnar eftir nokkra mánaða setu með samninganefnd ríkisins hjá ríkissáttasemjara varð að engu í dag. Það er deginum ljósara að enginn samningsvilji sé hjá ríkinu,“ segir Páll Halldórsson formaður samninganefndar BHM. Hann segir ríkisstjórnina augljóslega ekki tilbúna til að taka forystu við lausn deilunnar. „BHM hefur ítrekað verið tilbúið að ræða ýmsar leiðir til lausnar en þrátt fyrir það hefur ríkið ekki fengist í þá vinnu af alvöru og það sýnt sig að þeir eru að bíða eftir að samið verði á almennum vinnumarkaði.“ Í tilkynningu BHM segir að með þessu sýni ríkið starfsmönnum sínum vanvirðingu þar sem samningsréttur þeirra sé ekki virtur. „Stjórnvöld hafa að engu þau víðtæku áhrif sem verkfallsaðgerðir starfsmanna þeirra hafa og virða að vettugi þá grafalvarlegu stöðu sem löngu er komin upp í samfélaginu. Þessi staða er algerlega á ábyrgð ríkisins,“ segir Páll.
Mest lesið Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Borgarstjóri kom af fjöllum Innlent Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjanotkun Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Innlent Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Innlent „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Innlent Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Erlent Fleiri fréttir Allt sem þú þarft að vita um kosningarnar Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjanotkun Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Icelandair enn og aftur í vandræðum Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Borgarstjóri kom af fjöllum „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Húsráðandi mætti þjófnum eftir að hann fór inn og tók bíllyklana „Bara djók sem gekk of langt“ „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Höfðu afskipti af ölvuðum ungmennum við Valhöll Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Teknar úr umferð fyrr en til stóð Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Flugvöllur er ekki bara upp á punt Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Grunaður um líkamsárás og rán Listamannalaunakerfi í Reykjavík og róló með karakterum Guðrúnar Helgudóttur „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Sjá meira