Innlent

Réðst á ólétta kærustu með hnífi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Árásin átti sér stað í Breiðholtinu.
Árásin átti sér stað í Breiðholtinu. vísir/gva
Seint í gærkvöldi réðist maður að barnshafandi konu með hníf en konan er sögð vera kærasta mannsins í tilkynningu frá lögreglu. Atvikið átti sér stað í Breiðholtinu.

Maðurinn fannst eftir leit og var hann handtekinn og vistaður í fangaklefa. Hann verður yfirheyrður síðar í dag. Konan er lítillega slösuð.

Um kvöldmatarleytið í gær féll kona af hestbaki og var flutt með sjúkrabifreið af vettvangi. Fallið var töluvert en hjálmur konunnar brotnaði.

Um miðnætti var kona handtekin í miðbænum en hún pantaði veitingar og greiddi ekki fyrir þær. Konan var vistuð í fangageymslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×