Höfnin hönnuð með Minecraft Linda Blöndal skrifar 12. mars 2015 19:30
Tölvuleikurinn Minecraft var notaður til að hanna skipulagshugmyndir fyrir austurhöfnina í Reykjavík. Hönnuðirnir eru frá níu til fjórtán ára og segja leikinn tilvalinn, enda úr nægum kubbum að velja. Fréttastofa Stöðvar tvö hitti þrjá "minecraftara" í dag. Börn, frá átta til sautjánára hafa hannað með tölvuforritinu Minecraft skipulagshugmundir við austurhöfnina við Hörpu í Reykjavík. Verkefnið er í tengslum við Hönnunarmars en tæknisetur Skema sá um að halda vinnustofu með börnunum. Átján hugmyndir komu fram um hvaða starfsemi megi byggja þarna upp, svo sem sjávarlífssafn, pósthús, nýtt Kolaport, sundlaug, lögreglustöð og tívolí. Meðal hönnuða var Ásgrímur Gunnarsson 13 ára sem teiknaði tónlistarmiðstöð. „Það væri bæði hægt að flytja tónlist þar, læra tónlist þar og þess vegna hafa þar plötubúð líka. Þetta yrði stórt tónlistarsvæði, eins og framlenging af Hörpunni", sagði Ásgrímur. Sérstakt teikniforrit sem„ talar við" Minecraft var notað til að teikna út frá réttum stærðartölum. Nóg af kubbum til að hanna Verslunamiðstöð með búðum, veitingastöðum og ísbúð þar sem þemað er íslenskt hráefni og íslensk hönnun var hönnun Úlfs Atlasonar, 14 ára sem segir leikinn góðan til hönnunar. „Þetta eru náttúrulega kubbar og mjög auðvelt að búa til eitthvað. Það er mjög mikið úrval af kubbum til að byggja með", sagði hann. Ásgrímur og Úlfur hafa þrátt fyrir ungan aldur verið kennarar í Minecraft hjá Skema í tæplega þrjú á hvor. Eitthvað kósý Ásta Steindórsdóttir er 9 ára og bjó til Almenningsgarð með tónlistarsviði og leiktækjum. „Einn staðurinn hjá mér er að við gerðum svona leiktæki fyrir krakka. Þetta voru fjórir partar sem við teiknuðum og svo gerðum við svið í miðjunni. Í einum partinum var gosbrunnur og bekkur, eitthvað svona kósí. Svo gerðum við íslenska fánann úr blómum. Einn staðurinn var svo matsölustaður svona til að kaupa eitthvað að borða", sagði Ásta í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Allar hugmyndir krakkanna sem unnu í vinnusmiðju Skema verða sýnda í húsnæði þess við Síðumúla í Reykjavík næstkomandi laugardag.
Mest lesið Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Erlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Fleiri fréttir „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Sjá meira