Naseem líflátinn í Íran þrátt fyrir kröftug mótmæli Atli Ísleifsson skrifar 20. febrúar 2015 14:46 Saman Naseem var liðsmaður vopnaðra samtaka Kúrda, PJAK. Mynd/Amnesty
Írönsk stjórnvöld hafa tekið hinn 22 ára Saman Naseem af lífi, þrátt fyrir kröftug mótmæli fjölda mannréttindasamtaka. Mahmood Amiry-Moghaddam, leiðtogi íranskra mannréttindasamtaka, hefur staðfest þetta. Naseem var Kúrdi og var dæmdur til dauða árið 2013 vegna brota sem hann var sakaður um að hafa framið sautján ára gamall. Hann hafði þá verið liðsmaður vopnaðra samtaka Kúrda, PJAK, og var dæmdur fyrir að hafa skotið í átt að írönskum öryggissveitum.Í frétt mannréttindasamtakanna Amnesty segir að eftir handtökuna hafi Naseem verið neitað að hitta lögmann sinn og fjölskyldu. Fjölskylda hans vissi þá ekkert um handtökuna fyrr en hún sá myndband í sjónvarpinu þar sem hann „viðurkenndi“ þátttöku í aðgerðum gegn íranska ríkinu. Naseem sagði fyrir dómi að við yfirheyrslur hafi verðir fjarlægt neglur af fingrum og tám, auk þess að hann var barinn til óbóta. Þá sagðist hann hafa verið hengdur á hvolf með bundið fyrir augun þar sem verðir létu hann skrifa undir skjöl með fingraförum þar sem hann játaði brot sín. Hann neitaði sök í málinu og sagðist hafi skotið úr byssi sinni upp í loftið en ekki í átt að írönskum öryggissveitum.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira