Dularfullir drónar sveima yfir Parísarborg Atli Ísleifsson skrifar 24. febrúar 2015 10:47 Í nótt sást meðal annars til dróna fljúga nærri Eiffel-turninum. Vísir/AFP
Íbúar Parísarborgar hafa orðið varir við fjölda dróna sem sveima yfir og í kringum nokkur af helstu kennileitum borgarinnar að nóttu til. Lögregla í borginni lítur málið alvarlegum augum. Að minnsta kosti fimm drónar sáust á sveimi aðfaranótt dagsins í dag, en lögregla hefur ekki náð tali af neinum þeirra sem stýra drónunum.Í frétt BBC kemur fram að fyrsti dróninn hafi sést sveima yfir sendiráð Bandaríkjanna og síðar sáust drónar nærri Eiffelturninum og Place de la Concorde. Lögregla telur að málin gætu tengst. Ekki er flókið að fjárfesta í smærri drónum en vera þeirra nærri helstu kennileitum borgarinnar hafa vakið ugg á meðal lögreglu og almennra borgara. Í síðasta mánuði sást til dróna fljúga yfir Elysee-höll Frakklandsforseta og í október sáust nokkrir fljúga yfir kjarnorkuver víðs vegar um landið. Einnig hafa borist fréttir af drónum nærri Les Invalides og Bastillunnar. Með drónum má ná loftmyndum í háum gæðum, en ekki liggur fyrir hvort þeir sem stýra umræddum drónum hafi eitthvað illt í huga eða séu einfaldlega notaðir af áhugafólki.
Mest lesið Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Innlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Takmarka fjölda nemenda utan EES Innlent Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Erlent Telja brotið gegn réttindum barna og íhuga málaferli Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Innlent Fleiri fréttir Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Sjá meira