Íslendingar fara seinna að sofa og sofa skemur Samúel Karl Ólason skrifar 25. febrúar 2015 13:15
Svefnvenjur Íslendinga hafa ekki verið rannsakaðar í tuttugu ár, en nú hefur þverfaglegt teymi við Háskóla Íslands fengið það hlutverk að kortleggja svefnvenjur fólks og, í ljósi þeirrar umræðu um birtuna, að athuga áhrif misræmis á sólar og staðartíma á svefnvenjur Íslendinga. Svo virðist sem að Íslendingar fari seinna að sofa og sofi skemur en nágrannar okkar.Erla Björnsdóttir og Björg Þorleifsdóttir.„Það er erfitt að rífa sig á fætur í skammdeginu þegar það er svona mikið myrkur og þegar við erum á þessum ranga tíma, þegar það munar fyrir um 90 mínútum fyrir okkur á Reykjavíkursvæðinu þegar verst lætur,“ sagði Erla Björnsdóttir, sérfræðingur í Ísland í dag í gær. „Þegar við erum að vakna klukkan sjö á morgnanna er klukkan samkvæmt okkar innri klukku ekki nema hálf sex. Þannig að það er kannski ekki skrítið að það sé erfitt að fara á fætur.“Tilraunarinnar virði að breyta klukkunni Björg Þorleifsdóttir, lífeðlisfræðingur, segir það líklega vera tilraunarinnar virði að athuga hvaða áhrif það að breyta klukkunni hér á landi. „Við höfum náttúrulega engar fastar sannanir fyrir því að þessi fljóta klukka sé að orsaka þetta sem við höfum verið að tala um. Þennan seinkaða svefn og minni svefn. Það geta verið fleiri þættir.“ Björg segir erfðamengi koma einnig að svefnvenjum og að sumir eigi erfiðara með að stilla sig eftir dagsbirtunni, sem venjulega sé mikilvægasti þáttur stillingar lífklukkunnar svokölluðu. „Þá er það morgunbirtan einmitt. Þetta bláa ljós sem skiptir svo miklu máli, til að stöðva framleiðslu myrkurhormónsins í líkamanum. Ef að hún kemur ekki á réttum tíma þá eru myrkurhormónin lengur að verki í líkamanum og hvetur líkamann til þess að sofa. Á meðan við getum ekki sýnt fram á hvernig svefninn liggur hjá okkur, er erfitt að draga ályktanir af þessu,“ segir Björg.Tækjanotkun hefur áhrif Þar að auki hefur tækjanotkun á kvöldin áhrif á svefn okkar, sem beina ljósum beint í augu okkar. Það heftir að við fáum rétt skilaboð frá líkamanum um að fara að sofa. „Það er alveg öruggt að við þurfum að taka til í ýmsu hjá okkur,“ segir Björg. „Annað sem við erum að kanna í þessari rannsókn, er að við erum að skoða svefninn núna í skammdeginu og svo aftur þegar birtan er orðin meiri,“ segir Erla. „ Þá fáum við að vita hvort það sé einhver munur.“ „Erum við að sofa skemur yfir sumartímann, eða yfir vetrartímann? Er munur á svefnlyfjanotkun og líðan almennt? Það verða mikilvæg svör sem við fáum með þessari könnun.“Gífurleg notkun svefnlyfja Hér á Íslandi er svefnlyfjanotkun tvisvar til þrisvar sinnum meiri en annarsstaðar á Norðurlöndum og hafa læknar og starfsmenn Landlæknisembættisins sagt þetta vera verulegt áhyggjuefni. „Við notum óhóflega mikið af svefnlyfjum og þetta hefur verið mikið í umræðunni síðustu ár,“ segir Erla. „Við erum að nota fimm til sex sinnum meira en Danir sem hafa þó miklar áhyggjur af sinni svefnlyfjanotkun. Það hefur verið þannig að þetta er stöðugt að aukast.“ Aukning hefur orðið á notkun svefnlyfja á hverju ári nema síðustu tvö þrjú ár. Þá hefur notkunin minnkað smávægilega. Erla segir hugsanlegt að aukin umræða um skaðsemi mikillar notkunar af svefnlyfjum sé að skila sér og þá hefur úrræðum fyrir þá sem sofa illa fjölgað og þau hafi gefið góða raun.Mikilvægt að fá sem flest svör Bréf voru send til tíu þúsund Íslendinga og þeim boðið að taka þátt í rannsókninni. Hún fer að öllu leiti fram rafrænt nema einhver óski eftir öðru, og byggist hún upp á spurningalista. Björg segir að þeim hafi borist talsvert af svörum, en mikilvægt sé að fá sem flest. Svipaður listi verður svo aftur sendur út í júní. Svefntími fólks um allan heim hefur verið að styttast á síðustu 50 til 60 árum. Erla segir að kannanir bendi til þess að stór hluti Íslendinga sofi í sex tíma eða skemur á sólarhring. „Slíkur svefn tengist verulegri áhættu á hjarta og æðasjúkdómum, skerðir lífslíkur, eykur áhættu á offitu og hefur ýmsar aðrar alvarlegar afleiðingar.“ „Við þurfum virkilega að vita hver staðan er hjá okkur og hvernig við getum brugðist við því ef að raunin er sú að við séum að sofa of stutt.“ Nokkrir skólar á landinu hafa nú tekið upp á því að hefja nám seinna á daginn og Erla segir það hafa gefið góða raun.
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Innlent Fleiri fréttir Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent